
Japanskir vísindamenn hafa kynnt til sögunnar manngerðan gervigreindarmunk sem hlotið hefur nafnið Buddharoid. Vélmennið hefur verið þjálfað á umfangsmiklum búddískum helgiritum og er hannað til að veita andlega leiðsögn, svara heimspekilegum spurningum og taka þátt í trúarlegum athöfnum. Verkefnið er þróað við Kyoto University, þar sem rannsakendur vinna að því að nýta gervigreind til að bregðast við öldrun samfélagsins og skorti á starfandi munkum. Sagt er frá þessu í tæknirit Euronews.
Þjálfaður á aldagömlum ritum
Buddharoid hefur verið mataður á víðtækum búddískum textum, þar á meðal sérhæfðum fræðiritum. Með samþættingu háþróaðra mállíkana og manngerðs vélmennaforms getur hann talað, hreyft sig, beitt látbragði og tekið upp hefðbundnar bænastellingar í musterisrými.
Ólíkt eldri trúarlegum vélmennum, sem byggðu á fyrirfram forrituðum predikunum, er nýja kerfið hannað til að eiga lifandi og gagnvirk samtöl á sama tíma og það sýnir mannleg svipbrigði og hreyfingar.
Gekk klæddur kufli á milli gesta í japönsku musteri og ræddi við þá
Í nýlegri kynningu gekk Buddharoid á meðal gesta í musteri í Japan og átti einstaklingsbundin samtöl við viðstadda. Vélmennið er klætt gráum kufli en er án andlitsdrátta, sem leggur áherslu á hlutlausa nærveru þess í trúarlegu samhengi. Markmiðið með þróuninni er að kanna hvort gervigreind geti gegnt hlutverki í andlegri þjónustu í samfélagi þar sem hefðbundnum trúarleiðtogum fækkar hratt.
