N4 hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Þátturinn Frá landsbyggðunum var meðal þátta á N4.

Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu N4. Í tilkynningunni segir að tilraunir til þess að tryggja framtíð fjölmiðilsins hafi ekki borið árangur og því hafi ekkert verið annað í stöðunni en að óska eftir gjaldþrotaskiptum.

N4 hefur verið starfrækt í 15 ár og lýkur því nú sögu eina fjölmiðilsins sem framleitt hefur íslenskt sjónvarpsefni utan höfuðborgarsvæðisins. Í tilkynningunni segir að rekstur fjölmiðils eins og N4 hafi byggt á óeigingjörnu starfi starfsfólks í sífellt erfiðara rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi.  

„Fyrir það á starfsfólkið mikið hrós skilið.Stjórn fyrirtækisins harmar þessa niðurstöðu, ekki síst í ljósi þess að N4 hefur verið eini fjölmiðillinn sem framleitt hefur íslenskt sjónvarpsefni utan höfuðborgarsvæðisins.“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila