
Donald Trump forseti Bandaríkjanna kynnti á blaðamannafundi rétt í þessu nýja áætlun til að binda enda á stríðið á Gaza og hefja víðtækt friðarferli í Miðausturlöndum. Blaðamannafundurinn var haldinn strax eftir fund Trump og Netanyahu sem fram fór í Hvíta húsinu og voru þeir báðir á blaðamannafundinum. Bæði Trump og Netanyahu lýstu yfir að Hamas hefði nú síðasta orðið: ef hreyfingin samþykkti skilmálana sem fælust í friðarsamkomulaginu myndi stríðinu ljúka innan fárra daga og Hamas yrði að skila gíslum sem þeir hafa í haldi inna 72 klukkustunda.
Samhljómur Trumps og Netanyahus um áætlunina
Netanyahu lýsti yfir stuðningi við áætlun Trumps og sagði hana samræmast fimm meginskilyrðum Ísraels: að allir gíslar, bæði lifandi og látnir, kæmu heim, að Hamas yrði afvopnað. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að Ísrael haldi öryggisumgjörð á landamærunum og komið yrði á friðsamlegri borgarastjórn í Gaza sem hvorki yrði undir stjórn Hamas né Palestínsku heimastjórnarinnar. Hann sagði þetta geta orðið nýtt upphaf fyrir Gaza og allt svæðið.
Hamas fær 72 klukkustundir til að losa gíslana úr haldi
Trump sagði að fyrsta skrefið væri tafarlaus lausn allra gísla, bæði lifandi og látinna, innan 72 klukkustunda frá undirritun samkomulagsins. Þá myndu átökunum sjálfum ljúka strax, ekki aðeins bardögunum á Gaza. Arabaríki hefðu þegar heitið því að afvopna Hamas og aðra vígahópa. Ísrael myndi hefja áfangaskiptan brottflutning herliðs samhliða því að markmiðum yrði náð.
Alþjóðleg nefnd undir forystu Trumps
Í áætluninni er gert ráð fyrir stofnun alþjóðlegrar nefndar, „Board of Peace“, sem Trump sjálfur verður formaður fyrir. Hlutverk hennar er að fylgja eftir samningnum, sjá um þjálfun nýrrar palestínskrar stjórnar í Gaza og tryggja að Hamas eða aðrir vígahópar taki ekki þátt í stjórnun svæðisins. Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, er sagður meðal þeirra sem hafa lýst áhuga á að taka sæti í nefndinni.
Aðvörun til Hamas – „Auðvelda leiðin eða sú erfiðari“
Netanyahu sagði að ef Hamas hafnaði áætluninni myndi Ísrael ljúka hernaðaraðgerðum gegn hreyfingunni: „Við kjósum auðveldu leiðina, en markmiðunum verður náð, sama hvaða leið sem verður farin.“ Báðir leiðtogarnir ítrekuðu að Hamas bæri ábyrgð á ástandinu og yrði að víkja úr valda- og hernaðarhlutverki á Gaza.
Vonir um varanlegan frið í Miðausturlöndum
Trump sagði daginn sögulegan fyrir frið í Miðausturlöndum og að áætlunin gæti tryggt varanlegt vopnahlé og betri framtíð fyrir bæði Ísrael og Palestínumenn. Hann sagðist vilja byggja á reynslu Abraham-samkomulagsins og vonaðist til að fleiri ríki svæðisins, jafnvel Íran, gætu tekið þátt í nýju friðarferli.
Næstu skref ráðast af svörum Hamas
Leiðtogarnir sögðu að framtíðaráform yrðu nú alfarið háð viðbrögðum Hamas. Ef hreyfingin samþykkti skilyrðin gæti friðarsamkomulagið tekið gildi innan fárra daga, gíslum yrði skilað og uppbygging hefðbundins samfélags í Gaza gæti hafist. Ef ekki, sagðist Trump styðja Ísrael „100 prósent“ í að ljúka hernaðaraðgerðum sínum gegn Hamas.
