Ástandið á leigumarkaði er algerlega fordæmalaust og það sækja 200 manns um hverja þá íbúð sem kemur á leigumarkaðinn. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Hrafns Arngrímssonar formanns Samtaka leigjenda í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar.
Guðmundur segir að ásóknin sé svo mikil að leigusalar hætta að taka við umsóknum þegar talan er kominn upp í 200 umsóknir fyrir hverja fasteign. Þetta sýni að á leigumarkaði ríkir neyðarástand og í slíku ástandi eru því miður dæmi þess að leigusalar nýti sér ástandið til hins ítrasta með okurleigu.
Í þættinum greindi Guðmundur frá því að opinberar tölur um leiguverð sem fengið er með svokallaðri verðsjá leigumarkaðar sem er í umsjá Húsnæðis og mannvirkjastofnunar séu ekki í neinu samræmi við hvert raunverulegt leiguverð sé. Verðsjáin byggi eingöngu á þinglýstum leigusamningum sem sé mikill minnihluti samninga og því gefi opinberar tölur ekki rétta mynd af ástandinu á leigumarkaði. Ástæðan fyrir því er sú að þinglýstir samningar eru flestir gerðir við leigufélög eins og Brynju, Bjarg, Félagsbústöðum og fleiri slíkum félögum sem leigja út íbúðir á lægra verði.
Aðspurður um hvers vegna fólk þinglýsi ekki leigusamningum sínum segir Guðmundur að það sé vegna þess að fólk hafi ekki hagsmuni af því.
„einu hagsmunirnir eru þeir að þá getur leigjandinn sótt um húsnæðisbætur en leigjandi sem getur borgað 300 til 400 þúsund í leigu er með það háar tekjur að hann fær ekki húsaleigubætur“
Guðmundur bendir á að þrátt fyrir það þá sýni opinberar tölur um leiguverð samt sem áður hræðilega þróun á leigumarkaði hvað leiguverð varðar.