70% ungra karlmanna svöruðu að þeir væru óöruggir og óttuðust að að á þá yrði ráðist. Hjá konum var hlutfallið um helmingi lægra eða 36%. Þetta er þreföld aukning öryggisleysis hjá ungum mönnum frá árinu 2013 en þá óttuðust 26% ungra manna og 32% ungra kvenna að á þau yrði ráðist.
Þreföldun ofbeldis og öryggisleysis ungra karlmanna í Svíþjóð sýnir hversu hröð aukningin er í hversdagsofbeldi í landinu. Um alls kyns ofbeldi er að ræða ekki aðeins venjulegar skotárásir, sprengjuárásir og hnífabardagar heldur hafa vopnuð rán og hreinar barsmíðar aukist gríðarlega á undanförnum árum eins og kemur fram í öryggisleysi unga fólksins.
Sjá nánar hér