Refsiaðgerðir ESB gegn Rússlandi eru „fullkomin mistök“ segir Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands. Þau hafa alls ekki gengið eins og til var ætlast. Í stað þess að skaða Rússland hafa þær skaðað alla Evrópu, sagði hann í viðtali við Kossuth útvarpið á föstudaginn, segir Tass.
Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, heldur áfram að gagnrýna refsiaðgerðir ESB-elítunnar gegn Rússlandi. Þær hafa ekki gengið sem skyldi, útskýrði hann í útvarpsviðtali í dag.
„Refsiaðgerðirnar hafa ekki virkað eins og Brussel hafði búist við, þegar þær voru kynntar. Við vorum komin með áætlun um að grafa gryfju fyrir Rússa en lentum svo sjálf í henni.“
„Nú þarf að ákveða það sem á að gera. ESB segir okkur að halda áfram að grafa. Það er ekki skynsamlegt. Við Ungverjar segjum, að við verðum að reyna að koma okkur upp úr gryfjunni.“
ESB klofið í tvær fylkingar
Að sögn ungverska leiðtogans er ESB klofið í tvær fylkingar, eina sem enn trúir á refsiaðgerðir og hina, sem vill að ESB endurskoði stefnu sína. Að miklu leyti eru það refsiaðgerðirnar sem hafa valdið hinni miklu verðbólgu, sérstaklega matvælaverðbólgu, sagði hann enn fremur samkvæmt 24.hu.
„Ef það væru engar refsiaðgerðir gæti álfur fjarlægt verðbólguna með töfrum á morgun. Verðið myndi alla vega lækka um helming.“
„Skynsemin mun fyrr eða síðar hasla sér völl. Ef það er stríð sem aldrei hefði átt að hefjast og afleiðingar þess eru að fórna mörgum mannslífum og gera líf okkar erfiðara, þá skilur fólk að það er betra að lifa án stríðsins. En það er einungis hægt að ljúka stríði, ef andstæðir aðilar semja um frið.“