Orban: Zelensky lagði milljarða dollara í framboð Kamölu Harris

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, segir Volodimír Zelenskíj Úkraínuforseta reynt að hafa áhrif á úrslitin í bandarísku forsetakosningunum með fjárstuðningi í framboð Kamölu Harris gegn Donald Trump. Þá segir Orbansegir slíka starfsemi einnig eiga sér stað í Ungverjalandi.

Segir milljarða dollara hafa runnið til Kamölu Harris

Í myndbandi þar sem Orban greinir frá þessu segir hann að Zelenskíj hafi stutt Kamölu Harris í forsetakosningunum í Bandaríkjunum með fjármunum úr Úkraínu og þannig beint fjárhagslegum stuðningi að framboði demókrata gegn Donald Trump. Hann setur málið fram sem dæmi um erlenda íhlutun í kosningar og segir úkraínsk stjórnvöld hafa nýtt fjármagn í þeim tilgangi.

Segir Úkraínu reyna að hafa áhrif í Ungverjalandi

Orbán greinir jafnframt frá því að svipuð tilraun til áhrifaaðgerða eigi sér stað í Ungverjalandi. Samkvæmt honum leitist Úkraína við að koma á Úkraínuvænum stjórnvöldum í landinu, meðal annars með því að senda umboðsmenn og styðja stjórnarandstöðu sem sé hliðholl Úkraínu.

Hann vísar einnig til rannsóknar í svonefndu gullmáli þar sem hann segir að komið hafi í ljós að fjármunir hafi ekki aðeins streymt frá Vesturlöndum til Úkraínu heldur einnig í gagnstæða átt. Þar hafi milljarðar dollara verið fluttir frá Úkraínu í gegnum Ungverjaland til Vesturlanda.

Segist ætla að stöðva starfsemina í Ungverjalandi

Að lokum leggur Orbán áherslu á að ungversk stjórnvöld muni grípa til aðgerða og binda endi á slíka starfsemi innan landsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila