Framsóknarflokkurinn í lífshættu vegna orkupakkans

Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins

Framsóknarflokkurinn er í lífshættu vegna orkupakkans og búast má við að orkupakkamálið verði til þess að aðrir flokkar laskist verulega og missi menn af þingi í næstu kosningum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Styrmis Gunnarssonar fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins í þættinum Innlendar fréttir vikunnar í dag en Styrmir var þar gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar.

Styrmir segir aðeins eina leið færa fyrir forustu flokksins til þess að bjarga framtíð Framsóknarflokksins “ það sem forustan getur gert er að horfast í augu við pólitískan veruleika snúið við blaðinu og sagt innan ríkisstjórnarinnar að hún taki ekki lengur þátt í þessu, þeir eiga þennan kost, það liggur í augum uppi„,segir Styrmir.

Styrmir segir málið vera í höndum Framsóknar sem geti með þessu móti stillt Sjálfstæðisflokknum upp við vegg í málinu “ það er ekki góður kostur fyrir Bjarna að standa frammi fyrir því að þetta mál geti sprengt stjórnina enda á hann ekki auðvelt með að mynda aðra ríkisstjórn eins og staðan er„,segir Styrmir.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila