
Ósamræmis og misræmis gætir í viðmiðum breytinga á geislavarnalögum og undanskilja stóra starfstétt sem eiga þó á hættu að verða fyrir geislun. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Menntaspjallinu en þar var Leifur Árnason flugstjóri gestur Valgerðar Jónsdóttur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Flugáhafnir verða fyrir geislun
Leifur benti á að þannig séu til að mynda flugáhafnir sem sannarlega verða fyrir geislun í starfi sínu séu undanskildar nýju lögunum þrátt fyrir að vera skilgreindar sem geislavirkir starfsmenn. Þetta skapaði misræmi og gæti leitt til ófullnægjandi verndar fyrir flugáhafnir sem eru í hættu að verða fyrir geislavirkum áhrifum í miklu magni. Sérfræðingar töldu að geislavarnir ættu að ná til allra starfsmanna sem verða fyrir geislun, óháð stöðu eða hlutverki þeirra, til að tryggja heildstæða og sanngjarna vernd.
Þríhnúkagígur nefndur sem staður þar sem er uppsöfnun geislavirkra efna eins radons
Þá var einnig bent á ákvæði frumvarpsins sem snýr að náttúrulegri geislun, sérstaklega í neðanjarðarhellum og öðrum lokuðum rýmum þar sem geislavirkni getur safnast upp. Sem dæmi var nefndur þríhnúkagígur, þar sem áhyggjur eru af uppsöfnun geislavirkra efna eins og radons. Leifur segir ákvæðið sé mikilvægt fyrir heilsu fólks sem hefur aðgang að þessum stöðum, en um leið varaði Leifur við því að þegar kæmi til framkvæmda lagana yrði framkvæmdin ekki nægilega vel útfærð.
Þarf að tryggja heilstæða og áreiðanlega geislavarnir fyrir alla
Mikilvægt væri að tryggja heildstæða og áreiðanlega geislavarnir fyrir alla þá sem verða fyrir áhrifum geislunar í starfi sínu eða daglegu lífi. Bent var á að ef lögin eru ekki framkvæmd með samræmdum hætti, gæti það valdið alvarlegum afleiðingum og vanrækslu gagnvart mikilvægu öryggi almennings.
Hlekkir tengdir umræðu þáttarins:
https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/lagafrumvorp
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
