Óskar eftir endurupptöku hjá umboðsmanni vegna frávísunar í velsældarsendiherramálinu

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Hans Kluge, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar

Maður sem kvartaði til umboðsmanns Alþingis vegna starfa Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra fyrir Alþjóða heilbrigðisstofnunina sem velsældarsendiherra, hefur sent erindi til umboðamanns og krefst endurupptöku málsins eftir að umboðsmaður vísaði málinu frá.

Eins og kunnugt er vísaði umboðsmaður málinu frá með þeim rökum að fyrir þurfi að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnarleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega gegn þeim sem leggur fram kvörtunina eða snertir beinlínis hagsmuni hans umfram aðra.

Rök mannsins fyrir endurupptöku eru að hans sögn aðallega þau að maðurinn standi höllum fæti umfram aðra landsmenn, vegna mikilla veikinda af völdum Covid bóluefnanna og tjóns bæði á líkama og persónulegum eigum af völdum krampafloga sem hann hafi mátt þola um tíma vegna aukaverkana.

Þá segir í erindi mannsins til umboðsmanns:

“”Til vara (ef allt annað áðurnefnt verður léttvægt fundið) fer ég þess á leit að kvörtunin verði opnuð og felld undir samning frá 10.12.1984 um varnir gegn pyntingum, ómannúðlegri meðferð og þ.h. , vegna þess að samkvæmt upplýsingum frá Vísindasiðanefnd hefur hún aldrei gefið grænt ljós á að ég sé notaður sem tilraunadýr fyrir erlenda lyfjaframleiðendur, segir reyndar að engin beiðni hafi komið fram um slíkt frá Landlækni né neinum öðrum. Áðurnefnd sendiherrastaða mun ef lagðir eru saman 2 + 2 nefnilega girða fyrir að slík leyfi þurfi, sem er auðvitað klárt lögbrot.” segir í erindinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila