Varar Rússa við að fara sömu leið og Vesturlönd
Vinstri-frjálshyggja Vesturlanda hefur keyrt svo hranalega út af sporinu, að sum vestræn ríki haga sér eins og ráðamenn sovésku kommúnistastjórnarinnar. Þeir meðhöndla raunveruleikann og söguna út frá hugmyndafræðilegum „mælikvarða“ varar Vladimír Pútín Rússlandsforseti við. Rússar mega ekki fara sömu leið – „það skekkir meðvitund fólks, rýrir gildi og grefur undan fótfestu fólks í lífinu“ fullyrðir forsetinn.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hélt ræðu á fundi með sagnfræðingum og fulltrúum hefðbundinna trúarbragða Rússlands í síðustu viku. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að horfa hlutlægum augum til fortíðar Rússlands og falla ekki aftur inn í það mynstur sem ríkti á Sovéttímanum:
„Saga lands vors er samfelldur, stöðugur straumur. Við verðum að skoða hana í heild með öllum sínum ákaflega flóknu og jafnvel umdeildu tímabilum. Fyrir ríkið, yfirvöld, samfélagið og meðborgarana skiptir sköpum að búa yfir hlutlægri og fullkominni þekkingu á fortíð okkar, bæði það sem er lengra burtu og einnig það sem er nær. Allt skiptir máli, sérstaklega í dag.
„Ég vil undirstrika, að það er óviðunandi að endurtaka mistök Sovéttímans, þegar niðurstöður vísindamanna voru oft lagaðar að fyrirfram ákveðnu sniði. Almennt eru sniðmát ekki góð og í sögunni eru þau sérstaklega slæm. Eitthvað svipað er nú að gerast í sumum löndum á Vesturlöndum þar sem margt ræðst af róttækri frjálshyggjustefnu. Til að passa við þetta sniðmát eru mikilvægir sögulegir atburðir settir fram í algjörlega brengluðu, öfugu formi og sannleikurinn hverfur.“
Vísvitandi öfugsnúin nálgun að sögunni
Að sögn Pútíns er þetta „vísvitandi öfugsnúin nálgun“ að sögunni sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir fólkið sem býr í slíkum samfélögum:
„Það skekkir meðvitund fólks, eyðir gildum og grefur undan fótfestu fólks í lífinu. Þegar einhver vill svipta land fullveldi þess og breyta íbúunum í strengjabrúður, þá byrja þeir á því að endurskrifa sögu landsins, ræna fólk rótum sínum og dæma það til gleymsku. Við vitum að slíkar aðferðir virka því miður og leiða til hörmunga fyrir fólkið. Slíkar tilraunir hafa einnig verið notaðar gegn Rússum og þær halda áfram til þessa dags, en við höfum fljótt og af festu komið upp hindrunum gagnvart þeim. Þegar öllu er á botninn hvolft er rússnesk saga og menning grundvöllur þjóðlegrar sjálfsmyndar okkar, hugarfars okkar, hefðbundinna gilda, uppeldis yngri kynslóða og síðast en ekki síst undirstaða rússneska ríkisvaldsins.“
„Afstaða okkar varðandi varðveislu minningar um söguna og þar með fullveldi okkar pirrar sum Vesturlönd. Reyndar hefur það verið þannig um í aldanna rás. Og í dag eru enn gerðar tilraunir til að kippa undan okkur fætinum. Þessar tilraunir geta auðvitað ekki breytt fortíðinni og eru dæmdar til að mistakast. Það er ómögulegt að svipta landið okkar sigrum sem forfeður okkar hafa náð.“