Ráðherraþríeyki undirritar aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hafa staðfest aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi sem unnin var af þverfaglegum starfshópi heilbrigðisráðherra undir forystu Þórólfs Guðnasonar fyrrverandi sóttvarnalækni. Áætlunin feli í sér skilgreindar aðgerðir og verkefni sem stjórnvöld ráðist í , þar á meðal forgangsröðun þeirra og kostnaðarmat. 

Ónæmar bakteríur virði engin landamæri

Í tilkynningu segir að sýklalyfjaónæmi sé vaxandi alþjóðlegt vandamál og ein stærsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir. Sú hætta er sögð raunveruleg að í náinni framtíð verði ekki hægt að meðhöndla einfaldar og alvarlegar sýkingar með sýklalyfjum. Slík staða myndi hafa gríðarlega alvarlegar heilsufars- og efnahagslegar afleiðingar fyrir þjóðir heims. Þá segir að þó sýklalyfjaónæmi sé ekki eins stórt vandamál hér á landi og í mörgum öðrum löndum, fari vandinn vaxandi hér sem annars staðar. Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi krefjist alþjóðlegrar samvinnu, því ónæmar bakteríur dreifast milli landa og virði engin landamæri.

Vilja minnka notkun sýklalyfja og bólusetja í staðinn

Þá segir í tilkynningunni að þar sem orsakir sýklalyfjaónæmis séu margar og samverkandi, hvetji alþjóðlegar stofnanir til þess að aðgerðaáætlanir þjóða byggi á nálgun svokallaðrar „einnar heilsu“ (e. One Health) sem þýðir að aðgerðir beinist að mönnum, dýrum, matvælum og umhverfi þar sem rætur vandans eru sagðar liggja. Aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda sé unnin á þeim grunni og hafi því snertifleti við málaflokka á valdsviði ráðherranna þriggja sem hafa staðfest hana. Áætlunin nær til áranna 2025-2029 og inniheldur sex aðgerðir sem fela í sér 24 markmið og 75 verkefni sem nauðsynlegt er að hrinda í framkvæmd. Verkefnunum er forgangsraðað og kostnaður af framkvæmd þeirra metinn. Aðgerðunum sem um ræðir er ætlað að stuðla að markvissri og skynsamlegri notkun sýklalyfja hjá mönnum og dýrum. Þungamiðja áætlunarinnar felur í sér verkefni sem miða að því að minnka og bæta notkun sýklalyfja, auka hreinlæti og koma í veg fyrir sýkingar með öðrum ráðum eins og bólusetningum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila