Rangæingar eru löngum þekktir fyrir að halda sögu sveitarinnar á lofti og hafa fléttað hana inn í ferðaþjónustuna á svæðinu með mjög góðum árangri. En undanfarin ár hafa önnur sveitarfélög tekið framúr í þessum efnum og hafa því Rangæingar ákveðið að blása lífi í glæðurnar og sagnaarfinn og boða til Njáluþings. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðna Ágústssonar fyrrverandi ráðherra í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur.
Guðni sem er mikill áhugamaður um Njálu segir nauðsynlegt að halda Njálu á lofti enda eitt frægasta rit Íslendinga fyrr og síðar og bendir Guðni á að Njála sé bókin milli heiðni og kristni hún sé lögsagan og auðvitað saga átaka ástar og haturs og að auki heimsfræg sem sé í raun afar merkilegt því enn sé ekkert vitað um höfund hennar.
Njáluþingið verður haldið í Midgarð á Hvolsvelli klukkan 14:30 næstkomandi laugardag. Þar munu mæta margir góðir fyrirlesarar, meðal annara Lilja Alfreðsdóttir ráðherra, Arthur Björgvin Bollason leiðsögumaður, Anton Kári Halldórsson sveitarstóri sem haft hefur veg og vanda að verkefninu, Hjálmar Árnason sem ætlar að segja fólki frá Jóni Böðvarssyni frumkvöðli og þá mun Gunnhildur Kristjánsdóttir segja frá hinum stórmerkilega Njálurefli sem er 90 metra langur og 50 sentimetra breiður. Sem fyrr segir hefst dagskráin kl.14:30 á laugardag.
Í þættinum sagði Guðni einnig frá nýútkominni bók sinni sem ber heitið Flói bernsku minnar en nánar verður greint frá bókinni í dag hér á vef Útvarps Sögu.