Af öllu að dæma, þá var það greinilega leki á rannsóknarstofu, vegna rannsókna í hagnaðarskyni á viðbótarvirkni veirunnar í Wuhan, sem fjármagnaðar voru af bandarískum skattpeningum og stjórnvöldum, sem olli Covid. Robert Redfield, fyrrverandi forstjóri Smitsjúkdómavarnarstofnunar Bandaríkjanna, CDC, lýsti því yfir á óvæntum þingfundi í vikunni. Að sögn Redfield var opinbera skýringin beinlínis óvísindaleg og byggðist á „frásögn“ sem ákveðin var í byrjun. Hans eigin skoðun var þögguð niður. Vísindin hafa umræður og þeir „eyðilögðu allar umræður“ segir hann.
S.l. miðvikudag var Robert Redfield, fv. yfirmaður bandarísku smitsjúkdómavarnarstofnunarinnar CDC, spurður á þingi um uppruna Covid-veirunnar. Samkvæmt Redfield benda vísindin til þess að Covid-19 hafi verið afleiðing af slysaleka á rannsóknarstofu í Wuhan í Kína. Hann byggir þetta á líffræði sjálfrar veirunnar og undarlegum atburðum í Wuhan árið 2019. Hann útskýrði við yfirheyrsluna:
Óvenjuleg atburðarrás í Wuhan
„Í september 2019 gerðist þrennt í þeirri rannsóknarstofu. Í fyrsta lagi, þá eyddu þeir röðum veirunnar. Það er mjög óvenjulegt, vísindamenn gera það yfirleitt ekki. Í öðru lagi þá settu þeir borgarlega stjórn stofunnar í hendur hersins. Það er mjög óvenjulegt. Í þriðja lagi, sem mér finnst mjög áberandi, þá létu þeir verktaka breyta loftræstikerfi rannsóknarstofunnar. Sterkar vísbendingar eru um að mikilvægur atburður hafi átt sér stað á rannsóknarstofunni í september 2019.“
Viðbótarvirknin hefur valdið stærsta faraldri í heiminum
Þegar hann var spurður, hvort Wuhan stofnunin hefði tekið þátt í rannsóknum á viðbótarvirkni kórónuveirunnar, sem breytir henni þannig að hún smitist á auðveldari hátt á milli fólks, þá svaraði hann: „Að sjálfsögðu.“ Samkvæmt Redfield hafa slíkar rannsóknir aldrei leitt fram til nokkurs lífsbjargandi bóluefnis. Hann var spurður hvort hann teldi að viðbótarvirkni hafi nokkurn tíma stöðvað heimsfaraldur.
„Nei, þvert á móti, ég held að hún hafi líklega valdið stærsta faraldri sem heimurinn hefur séð.“
Var útilokaður frá rannsókn um upruna veirunnar
Að sars-cov-2 veiran gæti komið frá rannsóknarstofu var vitað þegar snemma árs 2020. En þegar Anthony Fauci, þáverandi forstjóri Lýðheilsunnar, NIAID, ætlaði að rannsaka uppruna veirunnar og heimsfaraldurinn, þá var Redfield útilokaður frá þátttöku í því starfi.
„Mér var tjáð, að þeir vildu eina frásögn og að ég hefði augljóslega annað sjónarmið. Munið að þessi faraldur byrjaði ekki í janúar á dýramarkaði. Við vitum núna, að smit náðu allt aftur í september. Þetta var frásögn sem var búin til. Þeir ætluðu að segja, að veiran kæmi frá dýramarkaði og ætluðu að gera allt sem þeir gátu til að styðja þá frásögn og hafna allri umræðu um að veiran kæmi frá rannsóknarstofu.“
Vísindin hafa umræður – þeir eyðilögðu allar umræður
„Mér fannst það ekki vera vísindalega staðfest, að þessi veira hefði farið úr leðurblöku yfir í menn og orðið ein sú mest smitandi veira sem fundist hefur í mönnum. Allar veirur eru ekki eins. Þegar litið er á kórónuveirurnar, SARS og MERS til dæmis, þegar þær urðu til, sem gerðist í gegnum millilið, þá fóru þær aldrei frá manni til manns. Veirurnar hafa enn ekki breyst til að fara á milli manna.“
Fauci leiddi rannsókn, sem byggði á því, að Covid-19 kæmi frá dýramarkaði í Kína. Þeir sem stjórnuðu frásögninni þögguðu niður í andstæðingum sínum. Robert Redfield sagði :
„Ég tel það vera gallaða rannsókn sem var í grundvallaratriðum hluti af tilbúinni frásögn þeirra. Vísindin hafa umræður, þeir eyðilögðu allar umræður.“
Heyra má yfirheyrsluna á myndbandinu hér að neðan og þar fyrir neðan stuttan bút úr myndbandinu og neðar eru tíst um málið: