Í könnun frá 2022 kemur í ljós að blaðamenn telja sig vera mun sanngjarnari og hlutlægari en almenningur skynjar. Því yngri og frjálslyndari, því verra verður það.
Það er blaðamaðurinn Michael Shellenberger sem vekur athygli á rannsókninni frá Pew Research Center. Hún sýnir mikinn mun á sýn blaðamanna á almennum fjölmiðlum.
Í spurningunni hvort leitast eigi við að gefa báðum hliðum jafnan tíma telur meirihluti bandarískra blaðamanna að það sé ekki æskilegt. Þegar bandarískur almenningur fær sömu spurningu, þá telur marktækur meiri hluti það vera hið ákjósanlegasta.
Þeim mun yngri og frjálslyndari sem blaðamaðurinn er, því líklegra er að viðkomandi blaðamaður telji ekki að báðir aðilar eigi að fá að tala jafnt.
Önnur niðurstaða er sú, að blaðamenn sem líta á falsupplýsingar sem stórt vandamál eru líka þeir, sem vilja ekki gefa báðum aðilum sama tækifæri.
Tveir þriðju hlutar blaðamanna telja, að þeir standi sig vel í að taka á mikilvægustu málunum, samanborið við 41% almennings