Reglugerð Svandísar um frestun hvalveiða ekki í samræmi við lög

Reglugerð sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra gaf út þann 20. júní síðastliðinn um frestun hvalveiða var ekki í samræmi við lög. Þetta er kemur fram í áliti Umboðsmanns Alþingis sem birt var í dag.

Umboðsmaður bendir á í álitinu að þótt ráðherra hafi getað horft til sjónarmiða um dýravelferð við útgáfu reglugerðarinnar þá sé vernd og viðhald stofnsins meginmarkmið laga um hvalveiðar. Ekki hafi verið tekið tillit til nýtingarsjónarmiða heldur fyrst og fremst horft til velferðar dýra og þá án þess að þeir hagsmunir væru vegnir saman við grunnreglur stjórnskipunarréttar um vernd atvinnuréttinda og atvinnufrelsis. Ráðherra hafi því skort nægilega skýra stoð í lögum við útgáfu reglugerðarinnar.

Fram kemur í álitinu að það sé mat Umboðsmanns að hann gæti ekki fallist á að möglegt álit fagráðs um velferð dýra, eitt og sér, hafi getað orðið viðhlítandi grundvöllur fyrir því að líta svo á að fyrirhugaðar veiðar Hvals hf. á langreyði væru hugsanlega, sem slíkar, andstæðar lagareglum um dýravelferð.

Þá segir einnig að niðurstaða fagráðsins hefði átt að kalla á frekari upplýsingaöflun af hálfu ráðuneytisins, t.a.m. um veiðiaðferðir og búnað sem ætlunin væri að nota á komandi vertíð. Mátti þá einnig vera ljóst að slík öflun upplýsinga hlaut að kalla á samskipti við Hval hf. sem eina aðilans sem naut leyfis til veiða á langreyði. Umboðsmaður fái ekki í annað ráðið en að ráðuneytið hafi fyrst upplýst Hval hf. um fyrirhugað tímabundið veiðibann 20. júní 2023 eða sama dag og reglugerðin var birt í Stjórnartíðindum.

Samkvæmt framangreindu telur Umboðsmaður að miða verði við að Hvalur hf. hafi, við þær aðstæður sem uppi voru í júní 2023, haft réttmæta ástæðu til að ætla að það gæti að meginstefnu haldið áfram atvinnustarfsemi sinni þá um sumarið að óbreyttum lögum Alþingis. Svo sem áður greinir fól útgáfa reglugerðarinnar hins vegar í reynd í sér bann við veiðum á langreyðum til 1. september þess árs sem gerði félaginu ókleift að sinna þessari starfsemi sinni á því tímabili. Verður þá í því sambandi einnig að árétta að atvinnustarfsemi fyrirtækis tengjast gjarnan aðrir afleiddir hagsmunir, s.s. starfsmanna. Þá telur Umboðsmaður einnig að kröfum stjórnsýsluréttar um meðalhóf í málinu hafi ekki verið gætt.

Álit umboðsmanns má lesa með því að smella hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila