Reykjavíkurborg kallar eftir hugmyndum í „Torg í biðstöðu 2026“

Reykjavíkurborg auglýsir eftir áhugasömum einstaklingum og hópum til þátttöku í verkefninu „Torg í biðstöðu 2026“ þar sem leitast er við að virkja lítt skilgreind borgarrými með tímabundnum inngripum.

Fram kemur í tilynningin að verkefnið beinist að rýmum sem falla utan hefðbundinna almenningssvæða á borð við torg og garða. Þar er einkum horft til svæða á milli húsa, við jaðra lóða, í portum, bakgörðum, á gangstéttum og annarra staða sem oft fara framhjá fólki í daglegu lífi. Markmiðið er að beina athygli að möguleikum þessara svæða og kanna hvernig megi skapa þar nýtt líf.

Tímabundin inngrip í borgarrými

Reykjavíkurborg hvetur umsækjendur til að leggja fram hugmyndir að tímabundnum verkefnum sem varpa ljósi á nýtingarmöguleika þessara rýma. Verkefnin geta verið af ýmsum toga, svo sem einföld og leikandi, praktísk eða tilraunakennd, en þeim er ætlað að opna nýja sýn á notkun og upplifun borgarrýma.

Áhersla er lögð á að verkefnin kalli fram spurningar um hvernig rýmin geti þróast fremur en að bjóða upp á fullmótaðar og varanlegar lausnir.

Skýr gögn þurfa að fylgja umsókn

Með umsóknum þarf að fylgja ítarleg lýsing á verkefninu í texta ásamt myndum, skissum og teikningum eftir því sem við á. Þá skal leggja fram verk- og tímaáætlun sem og grófa kostnaðaráætlun þar sem fram koma meðal annars efniskostnaður og launakostnaður.

Jafnframt þurfa ferilskrár allra umsækjenda að fylgja með, þar sem fram komi fullt nafn, kennitala og heimilisfang.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila