Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs gerðist sekur um mjög alvarleg brot gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands með umfjöllun sinni um Róbert Wessman. Þetta segir í tilkynningu frá Ómari R. Valdimarssyni Landsréttarlögmanni þar sem hann fjallar um tvo úrskurði Blaðamannafélagsins nr.8 og nr.9 2022-2023 sem beinast að vinnubrögðum Reynis.
Í tilkynningunni segir að niðurstaða úrskurðanna byggi meðal annars á því að siðanefndin hafi áður komist að þeirri niðurstöðu, í tveimur aðskildum málum frá 31. maí sl., að með móttöku fjármuna frá brottreknum starfsmanni Alvogen, Halldóri Kristmannssyni, hafi Reynir orðið vanhæfur til þess að fjalla um málefni Róberts. Þá segir siðanefndin að að hluta til sé um að ræða ítrekun á brotum gegn siðareglum.
Í umfjöllun Blaðamannafélags Íslands um málið segir:
„með móttöku fjármuna frá Halldóri Kristmannssyni, vegna bókarskrifa um kæranda, hafi kærði orðið vanhæfur til að fjalla um málefni kæranda í fréttamiðli með þeim hætti sem hin kærða umfjöllun var sett fram enda hafi honum borið skv. 5. gr. siðareglna að varast slíka hagsmunaárekstra.“
Þá segir að Siðanefnd telji þær greinar, sem merktar eru Reyni, vera alvarlegt brot á siðareglum með sama hætti og í fyrri úrskurðum. Greinar nr. 23-27, frá 3. júní 2022 til 27. júlí 2022, sem merktar séu Reyni, eru hins vegar birtar eftir uppkvaðningu úrskurðanna og eru því ítrekun á brotum gegn siðareglum. Siðanefnd telur að skrif og birting Reynis á þeim greinum vera mjög alvarlegt brot á siðareglum.
Í umfjöllun siðanefndar í máli nr. 9 2022-2023 segir: „Hin kærða umfjöllun er sama marki brennd og telur Siðanefnd að með umfjöllun um kæranda hafi Reynir áfram brotið gegn 5. gr. siðareglna.“ Brotið teljist mjög alvarlegt.
Smelltu hér og hér til þess að skoða úrskurðina
Reyni hefur í gegnum tíðina verið ítrekað stefnt fyrir ærumeiðingar og var Reynir með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 16. desember 2013 í mái nr. E-220/2013 dæmdur til að greiðslu miskabóta fyrir ærumeiðandi aðdróttanir en þau tilvik voru rifjuð upp í dómsmáli fyrir Landsrétti þar sem Arnþrúður og Útvarp Saga unnu fullnaðarsigur gegn Reyni Traustasyni og lesa má nánar um með því að smella hér.