Ríkisstofnanir Bandaríkjanna lokaðar í 30 daga

Ríkisstofnunum í Bandaríkjunum var lokað á miðnætti og verða lokaðar næstu 30 daga eftir að fjárlagafrumvarp fékk ekki samþykki í þinginu. Hvorki demókratar né repúblikanar náðu samkomulagi um fjármögnun fyrir næsta fjárlagaár.

Styttri framlenging felld í öldungadeildinni

Repúblikanar í öldungadeild lögðu fram tillögu um svonefnda bráðabirgðafjárveitingu (continuing resolution – CR) sem hefði haldið fjárveitingum óbreyttum til 21. nóvember og gefið þinginu tíma til að ákveða forgangsröðun fyrir árið 2026. Demókratar felldu tillöguna í reiði yfir að hafa verið sniðgengnir í viðræðunum. Frumvarpið hafði áður verið samþykkt í fulltrúadeildinni 19. september með meirihluta atkvæða repúblikana.

Deilt um heilbrigðistryggingar og útgjöld

Demókratar kröfðust þess að bráðabirgðafjárveitingin framlengdi einnig auknar niðurgreiðslur við Obamacare-sjúkratryggingar sem tóku gildi á Covid-tímanum en falla niður í árslok 2025. Repúblikanar sögðust tilbúnir að ræða þá fjármuni síðar á árinu en vildu ekki samþykkja meira en billjón dollara í ný útgjöld.

Trump fær víðtækt svigrúm

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Fjárlagaskrifstofa Hvíta hússins (OMB) ráða nú hvað ríkisþjónusta helst virk. Þúsundir starfsmanna verða sendir í leyfi eða vinna tímabundið án launa. Margar alríkisstofnanir gætu lokað og jafnvel fylgi fjöldauppsagnir, þar sem OMB hafði áður varað við slíkum áformum ef til lokunar kæmi.

„Skipuleg lokun hefst nú“

Russ Vought, yfirmaður OMB, sendi út minnisblað skömmu eftir að frumvarp repúblikana féll. Þar kom fram að stofnanir skyldu þegar hefja undirbúning fyrir lokana þar sem ljóst væri að öldungadeildardemókratar myndu ekki samþykkja frumvarpið fyrir frestinn.

Áhrif á starfsmenn og þjónustu

Samkvæmt mati Þingfjárlagaskrifstofunnar (CBO) gætu allt að 750 þúsund ríkisstarfsmenn verið í leyfi á hverjum degi og nemur daglegur kostnaður launa þeirra um 400 milljónum dollara. Vegna fyrirhugaðra uppsagna gæti daglegur kostnaður þó lækkað. Virkir hermenn fá ekki greidd laun á meðan á lokun stendur, en þingmenn halda launum sínum samkvæmt stjórnarskrá.

Lokun á þinghúsi og stofnunum

Á meðan á lokun stendur verður meðal annars lokað fyrir gesti í Capitol-þinghúsinu, Grasagarðinum og Þjóðbókasafni Bandaríkjanna. Ferðir þingnefnda til útlanda falla niður.

Ákall um samstöðu repúblikana

Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar, hvatti repúblikana til að sýna einingu og forðast pólitíska viðburði á borð við fjáröflunarsamkomur á meðan á lokuninni stendur.

Hermenn við æfingar á Grænlandi

Á meðan ríkisstofnanir í Bandaríkjunum eru lokaðar er nóg um að vera hjá Bandaríska hernum en talsverður fjöldi hermanna er til að mynda við æfingar í Grænlandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila