
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, í síðdegisútvarpinu, um stöðuna í kjaramálum og þá ákvörðun sem nú stendur fyrir dyrum um framtíð gildandi kjarasamninga. Sólveig Anna vill nýtt forsenduákvæði sem geri það að verkum að samningarnir renni sjálfkrafa sitt skeið næsta haust verði verðbólgan þá ekki komin niður í 3,5%. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Nýtt forsenduákvæði sett inn í samningana
Sólveig Anna sagði sig, Vilhjálm Birgisson og Hilmar Harðarson, formenn félaga í breiðfylkingunni sem gerði kjarasamningana, hafa lagt áherslu á að nýtt forsenduákvæði verði hluti af þeirri lausn sem nú er unnið að.
Samkvæmt hugmyndinni fá stjórnvöld, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins næsta árið til að ná verðbólgunni niður. Verði hún ekki komin niður í 3,5% næsta haust eigi kjarasamningarnir sjálfkrafa að renna sitt skeið.
Þá falli friðarskyldan niður og stéttarfélögin geti farið aftur inn í hefðbundnar kjarasamningsviðræður.
Janúarhækkanirnar haldist inni
Hugmyndin tengist þeirri afstöðu Eflingar að ekki sé skynsamlegt að segja samningunum upp nú þegar ef hægt verði að ná ásættanlegri niðurstöðu.
Með því að halda samningunum fá félagsmenn þær launahækkanir sem þegar hefur verið samið um og eiga að koma í janúar. Verði samningunum sagt upp nú falla þær hækkanir niður og við tekur óvissa um nýja samninga og hugsanleg átök.
Nýja forsenduákvæðið ætti því að veita verkalýðshreyfingunni tryggingu fyrir því að hún yrði ekki bundin áfram við samningana ef verðbólgan héldist of há.
Ríki og sveitarfélög verði að standa við sitt
Sólveig Anna leggur jafnframt áherslu á að ríki og sveitarfélög haldi gjaldskrárhækkunum í hófi. Sveitarfélög hafa lýst yfir vilja til að halda hækkunum innan 2,5% verðbólgumarkmiðs Seðlabankans og sambærileg aðkoma stjórnvalda er hluti af því sem Efling horfir til.
Hún sagði verðmætara að fá slíka aðkomu, halda umsömdum launahækkunum og setja skýran mælikvarða á verðbólguna heldur en að segja samningunum upp strax og hefja nýja kjaradeilu.
Sólveig Anna tók þó fram að hún ætti enn eftir að sjá nákvæm gögn um þær aðgerðir sem yrðu lagðar fram og vildi því ekki fullyrða fyrirfram hver niðurstaðan yrði.
Friðarskyldan falli niður ef markmiðið næst ekki
Verði verðbólgan enn yfir 3,5% næsta haust myndi nýja ákvæðið samkvæmt tillögunni leysa stéttarfélögin undan friðarskyldunni.
Þá væri ekki þörf á nýrri ákvörðun um hvort segja ætti samningunum upp heldur myndu þeir einfaldlega renna sitt skeið og við tæku nýjar kjarasamningsviðræður.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
