Hver er þessi ofurkynnti unglingur? Móðir hennar er þekkt óperusöngkona og vinstrirótæklingur sem gaf út bók um lofstlagið skömmu áður en dóttirin varð heimsfræg og fékk bókin mikla auglýsingu og sölu í kjölfarið. Loftslags-Gréta hefur persónulegan ráðgjafa Luisa-Marie Neubauer, sem er þekkt þýzk baráttukona gegn loftslagsbreytingum. „Hversu líklegt er það að 16 ára unglingur sem sest fyrir utan þinghúsið fái skólakrakka í öllum heiminum til að fara í verkfall fyrir loftslagið? Og hversu algengt er það að 16 ára unglingar hafi sinn eigin ráðgjafa?“ Luisa-Marie Neubauer sem sést á fjölda mynda með Grétu er frá samtökunum „One foundation“ sem fjöldi nafnþekktra einstaklinga styðja fjárhagslega eins og t.d. Bono og Bill og Melissa Gates – sem og margmilljarðamæringurinn George Soros – þekktur fyrir gjaldeyrisbrask og alþjóðlegu vinstri róttæku samtökin „Open Society“. Þá segir Piers Corbyn skv. Daily Mail að Gréta sé „heilaþvegið barn sem sé misnotað af fullorðnum með óheiðarlegum aðferðum“. Segir hann að Greta Thunberg sé „misnotuð fyrir markmið glóbalista í heiminum.“
Gréta ásamt persónulega ráðgjafa sínum Luisa-Marie Neubauer frá „One foundation“
Pieers Corbyn sem er bróðir stjórnmálamannsins Jeremy Corbyn mótmælir því að verið sé misnota barn vegna alheimsmarkmiða glóbalista
Tania Groth tístir með samsettri mynd af Soros og Gretu: „Það sem er raunverulega að gerast“