
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur þingmann Miðflokksins, í Síðdegisútvarpinu um stöðu Seðlabanka Íslands og samspil peningastefnu og ríkisfjármála. Í viðtalinu kom fram að þrátt fyrir formlegt sjálfstæði, starfi bankinn í reynd innan ramma stefnu stjórnvalda og að ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um aukin útgjöld og skattahækkanir torveldi bankanum að ná tökum á verðbólgu. Að mati Nönnu væri mikilvægt að skoða stefnu ríkissjtórnarinnar í efnahagsmálum með hliðsjón af stefnu þeirra að ganga inn í Evrópusambandið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Sjálfstæði sem takmarkast af stefnu stjórnvalda
Arnþrúður benti á að Seðlabanki Íslands starfi samkvæmt lögum sem sjálfstæð stofnun en fylgi jafnframt efnahagsstefnu stjórnvalda. Nanna Margrét sagði að þetta birtist skýrt í núverandi aðstæðum þar sem ríkisfjármálastefna ríkisstjórnarinnar þrengi að svigrúmi bankans. Hún sagði að þegar ríkissjóður eykur útgjöld og hækkar gjöld á sama tíma, sé verið að ýta undir verðbólgu og færa kostnað yfir á peningastefnuna. Afleiðingin sé að bankinn þurfi að grípa til harðari aðgerða en ella.
Kallar eftir skýrari afstöðu bankans
Nanna Margrét sagði, að Seðlabankinn hefði verið of varfærinn í að tengja opinberlega saman verðbólgu og ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. Hún taldi að bankinn ætti að segja með skýrum hætti að ríkisfjármálastefna stjórnvalda hefði bein áhrif á þróun vaxta. Hún sagði að skýrari málflutningur myndi varpa ljósi á orsakasamhengi milli ríkisútgjalda og aðgerða peningastefnunefndar.
Þróunin tengist ESB umræðunni
Í umræðunni sagði Nanna Margrét að röð efnahagslegra ákvarðana, sem teknar hefðu verið þrátt fyrir aðvaranir, veki spurningar um hvort verið sé að skapa aðstæður sem styðji inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hún vísaði til ummæla Kristrúnar Frostadóttur fyrir kosningar um að erfið efnahagsstaða gæti aukið stuðning við aðild. Hún sagði einnig að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefði gengið lengra í samskiptum við Brussel en fram kæmi í innlendri umræðu og að skortur væri á gagnsæi um þau samskipti.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
