Segir samkeppnisleysi í bankakerfinu ríkja vegna krónunnar

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur í Síðdegisútvarpinu um samkeppni á fjármálamarkaði, stöðu Landsbankans og áhrif gjaldmiðilsins á vexti, verðbólgu og húsnæðislán. Þar kom fram að hann telji undirliggjandi orsök takmarkaðrar samkeppni í bankakerfinu tengjast gjaldmiðlinum fremur en rekstrarformi einstakra banka. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Varar við breytingum á Landsbankanum án frekari greiningar

Í umræðunni vísaði Arnþrúður Karlsdóttir til hugmynda um að breyta Landsbankanum í svonefndan samfélagsbanka með það að markmiði að auka samkeppni á fjármálamarkaði. Dagur sagði að slík breyting þyrfti að byggjast á ítarlegri greiningu þar sem hætta væri á að þrengra hlutverk bankans gæti haft áhrif á aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni. Hann sagði að aðgerðir sem drægu úr umsvifum Landsbankans á ákveðnum sviðum gætu haft áhrif á samkeppnisstöðu hans gagnvart öðrum bönkum og þar með á lánamarkað í heild.

Staðan í vaxta og húsnæðismálum tilkomin vegna krónunnar

Dagur sagði að krónan hefði áhrif á vaxtastig á Íslandi og þar með á greiðslubyrði heimila. Hann vísaði til þess að stýrivextir Seðlabanka Íslands væru hærri en í nágrannalöndum og að verðbólga hefði reynst þrálátari hér á landi en víða annars staðar. Í umræðunni kom fram að hátt vaxtastig hefði áhrif á húsnæðislán og aðgengi almennings að lánsfjármagni sem gæti torveldað ungu fólki að eignast húsnæði. Hann sagði að þessi þróun tengdist meðal annars sveiflum í íslenskum gjaldmiðli og efnahagsstjórn undanfarinna áratuga.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila