
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að umfangsmiklum aðgerðum á Kársnesi í Kópavogi eftir að tilkynning barst um alvarlegt atvik í hádeginu. Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur verið kölluð út til aðstoðar vegna málsins.
Svæði girt af við fjölbýlishús
Samkvæmt upplýsingum af vettvangi hefur stórt svæði á Kársnesi verið girt af. Aðgerðirnar beinast að fjölbýlishúsi við Hafnarbraut þar sem lögregla hefur lokað aðkomu að stigagang fjölbýlishúss við götuna. Þá hafa tveir sjúkrabílar verið á vettvangi í tengslum við aðgerðir lögreglu.
Lögreglan hefur ekki viljað tjá sig nánar um eðli málsins en staðfest hefur verið að aðgerðir standi enn yfir og að málið sé á algjöru frumstigi.
