Jafnréttisstofa er staðsett í Háskólanum á Akureyri.
Sex umsækjendur hafa sótt um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu sem auglýst var um miðjan júní en umsóknarfrestur rann út 1.ágúst.
Umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu eru í stafrófsröð
Arnrún Halla Arnórsdóttir, aðjúnkt
Bryndís Elfa Valdemarsdóttir, sérfræðingur
Elinóra Guðmundsdóttir, fjölmiðlafræðingur
Jón Fannar Kolbeinsson, lögfræðingur
Marcin Zembrowski, viðskiptafræðingur
Martha Lilja Olsen, skrifstofustjóri
Það kemur í hlut Bjarna Benediktssonar að skipa nýjan framkvæmdastjóra en ekki kemur fram í tilkynningu hvernig valið fer fram. Fráfarandi framkvæmdastjóri er Katrín Björn Ríkharðsdóttir en hún hefur meðal annars gengt embætti ritara hjá mannréttindaráði Akureyrar sem og verið aðstoðarmaður bæjarstjóra
Hlutverk Jafnréttisstofu er nokkuð viðamikið en það er skilgreint í lögum um stjórnsýslu jafnréttismála, en þar segir:
Verkefni sem stofnunin annast á grundvelli laga um jafnréttismál eru að hafa eftirlit með framkvæmd laganna, sjá um fræðslu og upplýsingastarfsemi á sviði jafnréttismála, veita ráðgjöf og aðstoð á sviði jafnréttismála, koma á framfæri við ráðherra og önnur stjórnvöld ábendingum og tillögum um aðgerðir til að stuðla að auknu jafnrétti, t.d. um sértækar aðgerðir á sviði jafnréttismála, hvetja til virkrar þátttöku á sviði jafnréttismála, m.a. aukinnar aðkomu karla að kynja- og jafnréttisstarfi, fylgjast með þróun jafnréttismála í samfélaginu, svo sem með upplýsingaöflun og úttektum og hafa frumkvæði að því að gerðar verði skýrslur, kannanir eða rannsóknir á sviði jafnréttismála, vinna að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni í samstarfi við önnur stjórnvöld og samtök sem sinna slíkum forvörnum sérstaklega, sbr. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á vinnumarkaði;
Þá er lögð sérstök áhersla lögð á há Jafnréttisstofu að vinna gegn launamisrétti á grundvelli kyns, sbr. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, leita sátta í ágreiningsmálum sem Jafnréttisstofu berast og varða ákvæði laganna, ef Jafnréttisstofa telur tilefni til, vinna gegn neikvæðum kynjaímyndum og neikvæðum staðalímyndum um hlutverk kvenna og karla sem og neikvæðum staðalímyndum byggðum á kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu.
Þá hefur stofnunin umsjón með umsýslu jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar, sbr. 9. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, annast eftirlit með jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfestingu, sbr. 10. gr. sömu laga, og veita jafnlaunastaðfestingu, sbr. 8. gr. sömu laga, og vinna önnur verkefni í samræmi við markmið laganna samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.