Deloitte fær borgað fyrir að rægja kapítalismann og aðstoða glóbalistana við að kollvarpa núverandi efnahagskerfi Vesturlanda
Peterson bendir á þá staðreynd, að endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið Deloitte er ráðgjafi glóbalískra stjórnmálaleiðtoga, sem hafa með stjórnmálaaðgerðum og áætlunum leitt til ólgu út um allan heim.
„Ef þú vilt fá svör við, hvað er að baki uppreisn hollenskra bænda og sjómanna, kanadísku vörubílalestarinnar, gulu vestanna í Frakklandi, bændauppreisnarinnar á Indlandi fyrir nokkrum árum, hörmulegu hruni á Sri Lanka nýlega eða orkukreppunni í Evrópu og Ástralíu, þá finnurðu þau í nýjustu yfirlýsingum Deloitte.“
Jordan Peterson undirstrikar, að Deloitte birti fyrr á þessu ári ákall um tafarlausar aðgerðir til að berjast gegn loftslagskreppunni. Þar er meðal annars fullyrt, að stormar, eldar, þurrkar, rigningar og flóð undanfarna 18 mánuði hafi verið einstakir og fordæmalausir – og að nú verði að endurgera öll samfélög og efnahagskerfi heimsins og breyta hegðun allra til að forðast það, sem fullyrt er að verði mesta umhverfisslys í heimssögunni. Verði það ekki gert, þá mun það kosta okkur himinháa 178 milljarða Bandaríkjadala næstu 50 árin.
„Hver þorir að afneita slíkum staðreyndum, staðfestar á svo stærðfræðilegan hátt? Á svo nákvæman hátt? Á svo vísindalegan hátt?“ spyr sálfræðiprófessorinn og bendir á að ESB og aðrir löggjafar taka afdrifaríkar ákvarðanir byggðar á óvissutilgátum, sem muni gera mannkyninu meiri skaða en gagn.
Allir verða fátækari samkvæmt ráðum Deloitte
Peterson segir ennfremur, að stjórnvöld hafi þegar tekið óvísindalegar ákvarðanir um að „verða græn“ og draga verulega úr losun sinni á afar skömmum tíma. Það er hins vegar ómögulegt án þess að rústa algjörlega eigin hagkerfi og iðnaði – og útsetja þar með íbúana fyrir miklum þjáningum.
„Það eina sem líkön Deloitte ábyrgjast er, að ef við gerum það sem þeir mæla með, þá verðum við örugglega fátækari en ella. Þeir fátækustu verða harðast fyrir barðinu á breytingunum.“
„Hefurðu tekið eftir því, að maturinn er orðinn dýrari? Að húsnæði er orðið dýrara? Að orkan er orðin dýrari? Að margar vörur eru ekki lengur fáanlegar? Skiljið þið ekki, að þetta á bara eftir að versna, ef uppblásnir siðapostular Deloitte fá sitt fram? Hversu mikla „skammtíma þjáningu“ muntu þurfa að þola? Áratugi saman? Alla ævina? Alla ævi þína og barnanna þinna?“
Hinn hreinskilni sálfræðiprófessor bendir einnig á, að ekki eru allir sammála áformum glóbalistanna um að hrekja þá út í fátækt og að vörubílstjórar, bændur og reiðir borgarar þegar valið að veita mótspyrnu og mótmælin breiðast út.
„Ráðgjafar Deloitte og miðstýringarhópar í sömu sporum taka hlutina of langt… Dagskrá þeirra, sem er réttlætt með því að það sé kreppa, mun þess í stað gera alla fátækari – sérstaklega þá sem þegar eru fátækir.“
Látið okkur í friði!
Prófessorinn er líka sannfærður um, að áætlanir hnattræningjanna um að þvinga Vesturlönd út í fátækt með vísan til loftslagskreppunnar, muni kaldhæðnislega einnig leiða til enn meiri skaða á umhverfinu. Fólk mun einungis geta sinnt eigin daglegum þörfum í þeim efnahagsglundroða sem af þessu leiðir og ekki hafa hafa tíma eða getu fyrir neina „umhverfishugsun.“
„Viðvörunarbjöllurnar hringja. Hlustaðu á þær áður en þær breytast í sírenur. Það verður ekki áfram haldið án mótstöðu gegn því oki, sem lagt hefur verið á herðar okkur. Við munum ekki leyfa ykkur að stela og eyðileggja þá orku sem gerir líf okkar þolanlegt. Við munum ekki leyfa gagnrýni á börn okkar bara fyrir að vera til og að sú framtíð farsældar og möguleika, sem við höfum lagt svo hart að okkur að skapa, verði tekin frá þeim.“
„Látið okkur í friði þið miðstýringarvaldhafar, þið dýrkendur Gaia, þið sem fórnið auði og eignum annarra; þið sem eruð bjargvættir plánetunnar; þið sem þykist hafa samvisku og vera boðberar góðvildar og mótmælið valdinu samtímis sem þið kappkostið að raða því í kringum ykkur. Látið okkur í friði svo við getum blómstrað eða ekki vegna eigin valkosta og gjörða… Látið okkur í friði eða uppskerið fellibylinn og sjáðu hræðilega eyðileggingu þess sem þið þykist ætla að bjarga í kjölfarið.“