
Um 25 fiskibátar fóru inn í Gautaborg á föstudag til að mótmæla vindorku á hafi úti. Framleiðendasamtök sænskra sjómanna, SFPO, standa að baki mótmælunum með þemað „Engin vindorka á fiskimiðunum okkar.“
Sjómenn mótmæla ákvörðun stjórnvalda um að flýta fyrir byggingu vindorkugarðanna Suður Kattegatt og Galene í Kattegatt. SFPO skrifar í fréttatilkynningu að þetta hafi verið „sjaldgæf og slæm ákvörðun sem tekin hafi verið án undirbúnings og með pólitískum undirtónum.“ Í tilkynningunni segir jafnframt:
“Ákvörðunin felur í sér, að í framtíðinni verður ekki hægt að stunda veiðar í atvinnuskyni í Kattegatt. Um 50 sænsk smáfyrirtæki – sjávarmatvælaframleiðendur – eru sviptir lífsviðurværi sínu. Í ákvörðun ríkisstjórnarinnar er ekkert tilgreint um bætur vegna hinna eyðilögðu fiskiveiða sem stundaðar eru sem atvinnumennska.“
Fleiri mótmæli eru fyrirhuguð í nánustu framtíð. Peter Ronelöv Olsson, formaður SFPO segir við Göteborgs Posten:
„Í dag erum við góðhjartaðir en við erum í baráttuhug.”
