
Skipulögð brotastarfsemi er metin ein alvarlegasta ógnin við innra öryggi Íslands, í nýrri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra, um stöðu öryggismála í upphafi árs 2026. Þar kemur fram að íslensk löggæsla standi á tímamótum vegna vaxandi umfangs, aukinnar sérhæfingar og harðari aðferða skipulagðra brotahópa.
Starfa þvert á landamæri og nýta stafræna innviði
Í skýrslunni er rakið að brotahópar starfi, í auknum mæli, þvert á landamæri og nýti dulkóðuð samskipti, rafmyntir og stafrænan vettvang í starfsemi sinni. Slík brotastarfsemi nái meðal annars til stórfelldra fíkniefnabrota, peningaþvættis, net- og tölvubrota, mansals og skipulagðs eignaþjófnaðar.
Fram kemur að glæpahóparnir blandi í auknum mæli löglegri starfsemi og ólögmætri, meðal annars með því að hylma yfir ólögmætan ávinning og koma honum í löglegt horf, í gegnum fyrirtækjarekstur og fjármagnsflæði. Slík starfsemi sé oft dulin og byggi að verulegu leyti á frumkvæðisrannsóknum lögreglu sem geri hefðbundna afbrotatölfræði takmarkaða sem mælikvarða á raunverulegt umfang.
Grafa undan samkeppni og veikja traust
Greiningardeildin bendir á að skipulögð brotastarfsemi hafi bein áhrif á löglega atvinnustarfsemi með undirboðum, misnotkun á vinnuafli og skattaundanskotum. Þannig skekkist samkeppni, traust á markaðsaðstæðum veikist og hætta á spillingu eykst.
Þá er rakið að brotahópar beiti ofbeldi og hótunum með markvissum hætti og hagnýti einstaklinga, í viðkvæmri stöðu, í þágu starfsemi sinnar. Sú þróun hafi áhrif á öryggi almennings og seiglu samfélagsins.
Lögð áhersla á aukna rannsóknargetu og alþjóðlegt samstarf
Í skýrslunni er lögð skýr áhersla á, að baráttan gegn skipulagðri brotastarfsemi sé grundvallarþáttur, í heildstæðri stefnu um innra öryggi. Áhersla sé lögð á aukna rannsóknargetu, upplýsingamiðaða löggæslu, upptöku ólögmæts ávinnings og frystingu fjármuna, auk þess sem styrkja þurfi alþjóðlegt samstarf til að bregðast við auknu alþjóðlegu eðli alvarlegrar brotastarfsemi.
Niðurstaðan er sú að skipulögð brotastarfsemi sé ein brýnasta áskorun samtímans á sviði innra öryggis og kalli á samræmda og markvissa viðbragðsáætlun stjórnvalda. Skipulögð brotastarfsemi ein alvarlegasta ógnin við innra öryggi
Lesa má skýrsluna hér að neðan
