
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eða rúm 73% vilja ekki að forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson gefi kost á sér til endukjörs.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um síðustu helgi.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í gær en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands bjóði sig fram til endurkjörs?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 73,6%
Já 21,3%
Hlutlaus 5,2%
Atkvæði: 987