
Hópur fólks hefur tekið sig saman og hafa opnað vef (austurvollur.is) þar sem undirskrfitum er safnað í þeim tilgangi að skora á Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta Íslands að gerast sáttasemjari á milli Rússa og Úkraínumanna. Í fréttatilkynningu frá hópnum segir:
„Stríðið í Úkraínu er líklegt til að þróast til heimsstyrjaldar með kjarnorkuvopnum. Aðgerðaleysi herskárra leiðtoga vesturlanda til friðar ógnar framtíð okkar og velsæld. Íslendingar, vopnlaus þjóð sem búið hefur við frið í nær þúsund ár, þarf að hafa skynsemi til að grípa í taumana án tafar með afgerandi friðarátaki.“
Þá segir að hvorki Rússar né Úkraínumenn geti staðið uppi sem sigurvegarar í stríðinu sem nú er háð. Vesturlönd verði að finna nýjar leiðir til friðar og jafnvægis þar sem hagsmunir almennings og mannréttindi eru í fyrirrúmi. Það verði ekki gert með meiri vopnum og hernaði sem mun aðeins leiða til aukinna átaka og breiða út enn meiri hörmungar en nú dynja á Úkraínu.
„Íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir tafarlausu vopnahlé og friðarviðræðum. Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum forseti Íslands hefur reynslu, tengslanet og virðingu á alþjóða vettvangi til að leiða þetta verkefni fyrir hönd okkar Íslendinga.“
„Í stað þess að veita fjármagn í hergagnaflutninga setjið fjármagnið í friðarviðræður undir hans forystu Ólafs Ragnars Grímssonar.“
Smelltu hér til þess að undirrita áskorunina