
Fjölda skota var skotið í átt að Hvíta hússins í Washington D.C. af þungvopnuðum manni . Bandaríska leyniþjónustan og alríkislögreglan FBI brugðust þegar við og hófu umfangsmiklar öryggisaðgerðir. Samkvæmt upplýsingum átti atvikið sér stað um klukkan sex síðdegis að staðartíma nærri gatnamótum 17. strætis og Pennsylvania Avenue. Leyniþjónustan svaraði skothríðinni samstundis.
Blaðamenn fluttir í skjól
Vitni á vettvangi sögðu að starfsmenn leyniþjónustunnar hefðu skipað fréttamönnum að leggjast niður áður en þeir voru fluttir í skyndi inn í blaðamannaherbergi vesturálmu Hvíta hússins. Þá sáust vopnaðir öryggisverðir á lóð forsetasetursins og heyrðust samkvæmt fréttamönnum allt að 20 til 30 skot í nágrenni Eisenhower-skrifstofubyggingarinnar sem stendur við Hvíta húsið.
Samkvæmt upplýsingum frá Fox News komst hinn grunaði aldrei inn fyrir ytri öryggismörk forsetasetursins.
Óbreyttur borgari særðist í átökunum
Einn óbreyttur borgari mun hafa særst í skotárásinni eða í skothríðinni sem fylgdi í kjölfarið. Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um ástand viðkomandi.
FBI staðfesti að sérsveitir alríkislögreglunnar hefðu verið sendar á vettvang til að aðstoða leyniþjónustuna við rannsókn málsins og öryggisgæslu.
Trump var í Hvíta húsinu
Donald Trump Bandaríkjaforseti var samkvæmt bandarískum fjölmiðlum staddur í Hvíta húsinu þegar atvikið átti sér stað. Fyrr um daginn hafði hann greint frá því að stjórn hans væri nálægt samkomulagi um að binda enda á stríðið við Íran. Yfirvöld hafa enn ekki birt upplýsingar um hver árásarmaðurinn var né hvort hann hafi verið handtekinn. Þá hefur ekki verið staðfest hvort um beina árás á Hvíta húsið hafi verið að ræða.
Rannsókn málsins er í höndum alríkisyfirvalda
Uppfært kl.01:10
Lögregluyfirvöld hafa staðfest að árásarmaðurinn hafi fallið í átökum við lögreglu
