
Sósíalistaflokkur Íslands hefur birt framboðslista sinn til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík sem fara fram 16. maí, ásamt stefnumálum sem snúa að húsnæðismálum, samgöngum, velferð og rekstri borgarinnar. Framboðslistann má sjá neðst í fréttinni.
Áhersla á húsnæði án hagnaðarsjónarmiða
Flokkurinn leggur til að stofnað verði byggingafélag á vegum borgarinnar sem byggi og reki óhagnaðardrifið húsnæði. Markmiðið er að lækka kostnað, auka framboð og tryggja aðgengi almennings að íbúðum. Þá er lagt til að lóðir borgarinnar fari í félagslega uppbyggingu fremur en á almennan markað.
Vilja breyta rekstri almenningssamgangna
Í samgöngumálum vilja Sósíalistar færa rekstur almenningssamgangna í hendur borgarinnar, lækka fargjöld og bæta tengingar innan borgarinnar. Þá er lögð áhersla á framgang Borgarlínu og andstaða við einkarekstur í bílastæðamálum.
Aukin áhersla á skólakerfið
Í menntamálum er lögð áhersla á að efla stoðþjónustu innan skóla, fjölga sérfræðingum og bæta starfsaðstæður. Þá vilja Sósíalistar efla íslenskukennslu, tómstundastarf og bæta skólamáltíðir.
Borgin reki eigin matvöruverslanir
Flokkurinn leggur til að Reykjavíkurborg setji á fót eigin matvöruverslanir til að bregðast við háu verði og fákeppni á markaði. Tekjur yrðu nýttar til að lækka verð og auka framboð.
Gagnrýna útvistun og vilja breytingar á skattkerfi
Sósíalistar vilja hætta útvistun verkefna á vegum borgarinnar og telja hana bæði dýrari og skila lakari þjónustu. Þá er lagt til að þrýst verði á breytingar á skattlagningu fjármagnstekna.
Vilja útrýma heimilisleysi
Í velferðarmálum er lögð áhersla á uppbyggingu smáhýsa til að útrýma heimilisleysi, bæta aðstöðu í neyðarskýlum og efla þjónustu við viðkvæma hópa. Þá er einnig lagt til að bæta húsnæðisúrræði fyrir eldri borgara og fólk með fötlun.
Breiður framboðslisti
Framboðslistinn samanstendur af 46 einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn. Í efstu sætum listans eru Silja Sóley Birgisdóttir, Sigrún E. Unnsteinsdóttir og Hannes Pétursson.
Framboðslisti Sósíalistaflokks Íslands til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 16. maí 2026
1. Silja Sóley Birgisdóttir, 25 ára, stuðningsfulltrúi
2. Sigrún E Unnsteinsdóttir, 69 ára, athafnakona
3. Hannes Pétursson, 33 ára, verslunarmaður
4. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, 51 árs, öryrki
5. Jón Ferdínand Estherarson, 34 ára, stjórnmálasagnfræðingur
6. Birna Gunnlaugsdóttir, 64 ára, kennari
7. Rósa Guðný Arnardóttir, 32 ára, nemi
8. Halldór Ísak Ólafsson, 26 ára, kvikmyndagerðarmaður
9. Jökull Sólberg Auðunsson, 40 ára, forritari
10. Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir, 33 ára, nemi
11. Guðmundur Guðmundsson, 41 árs, nemi
12. Þórhildur Katrín Pálsdóttir, 19 ára, nemi
13. Davíð Aron Routley, 33 ára, starfsmaður á velferðarsviði
14. Anita da Silva Bjarnadóttir, 32 ára, öryrki
15. Guðröður Atli Jónsson, 47 ára, tæknimaður
16. Eyjólfur B Eyvindarson, 50 ára, tónlistar- og kvikmyndagerðarmaður
17. Uldarico Castillo de Luna, 62 ára, hjúkrunarfræðingur
18. Berglind Rut Terrazas, 33 ára, umönnunarstarfsmaður
19. Anna Jonna Ármannsdóttir, 64 ára, rafvirkjameistari
20. Marc Eldie Fomador, 27 ára, kokkur
21. Helgi Páll Einarsson, 43 ára, hönnuður
22. Bryndís Ýrr Baldursdóttir, 50 ára, listakona
23. Esther Jónsdóttir, 64 ára, stuðningsfulltrúi
24. Tinna Þorvaldsdóttir, 41 árs, söng- og leikkona
25. Hjörtur Birgir Jóhönnuson, 41 árs, verkamaður
26. Hermann Karl Gunnarsson, 26 ára, stuðningsfulltrúi
27. Auður Mist Eydal Halldórsdóttir, 25 ára, myndlistarkona
28. Þorvaldur Þorvaldsson, 68 ára, trésmiður
29. Björgvin Már Karlsson, 29 ára, tónlistarmaður
30. Magnús Bergsson, 64 ára, rafvirki
31. Sólrún Freyja Sen, 28 ára, kvikmyndagerðarmaður
32. Hjörtur E Þorgeirsson, 33 ára, deildarstjóri
33. Hjálmar Friðriksson, 38 ára, atvinnulaus
34. Valtýr Kári Daníelsson, 29 ára, eðlisfræðingur
35. Kristbjörg Eva Andersen Ramos, 28 ára, stjórnandi
36. Stefán Örn Ingvarsson Olsen, 22 ára, rafvirki
37. Kristófer Andrésson, 25 ára, myndlistarnemi
38. Björn Guðmundsson, 51 árs, verkefna- og gæðastjóri
39. Þorbjörg Inga Þórisdóttir, 38 ára, öryrki
40. Árni Daníel Júlíusson, 66 ára, sagnfræðingur
41. Björgvin Máni Ársælsson, 21 árs, tæknimaður
42. Ólafur Pétur Georgsson, 47 ára, kvikmyndagerðarmaður
43. Sherry Ruth Espino Buot, 54 ára, athafnakona
44. Guðmundur Erlendsson, 75 ára, eftirlaunamaður og kokkur
45. Júlíus K. Valdimarsson, 82 ára, húmanisti
46. Sólveig Hauksdóttir, 82 ára, hjúkrunarfræðingur
