Sprautur gegn Covid eru ekki bóluefnasprautur

Arnar Þór Jónsson lögmaður og Dr. Jón Ívar Einarsson, prófessor í læknisfræði við Harvard háskólann í Boston í Bandaríkjunum

Efni sem hingað til hafa verið sögð vera bóluefni gegn Covid eru í raun ekki bóluefni vegna þess að þau vernda ekkert sérstaklega vel gegn smiti eða hindri að fólk smiti aðra. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Dr. Jóns Ívars Einarssonar, prófessors í læknisfræði við Harvard háskólan í Boston í Bandaríkjunum í þættinum Í leit að sannleikanum í dag en hann var gestur Arnars Þórs Jónssonar lögmanns.

Jón Ívar segir að í grunninn ætti að tala um efnið sem lyf, því ef talað væri um þetta sem lyf myndi fólk líta öðruvísi á þetta efni sem því er gefið. Þá yrði fólki sagt að verið sé að gefa því lyf sem eigi að minnka líkurnar á veikindum en geti líka haft aukaverkanir.

Þá segir Jón það uggvænlega þróun að fólki sé sagt að það megi ekki stunda vinnu sína eða fara á ákveðna staði án þess að taka þetta tiltekna lyf.

ef til dæmis ungt heilbrigt fólk ákveður að fara ekki í sprautuna af hvaða ástæðum sem er, þá á það auðvitað að vera bara þeirra ákvörðum“ segir Jón.

Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila