
Ísraelsher staðfesti fyrir stundu að 40 háttsettir yfirmenn í íranska hernum hefðu verið felldir frá upphafi hernaðaraðgerðar sem nefnist „Operation Epic Fury“. Þar á meðal var Abdolrahim Mousavi, yfirmaður herafla Írans. Orðrómur hafði verið á kreiki frá í gær um að svo margir hátt settir menn hafi verið felldir, orðómur sem nú hefur verið staðfestur.
Samkvæmt yfirlýsingu hersins gegndi Mousavi einu æðsta embætti innan íranska hersins og tók við stöðu yfirmanns heraflans af Mohammad Bagheri, sem var felldur í upphafsárás aðgerðarinnar „Operation Rising Lion“ í júní 2025.
Segja æðstu öryggisráðamenn fellda
Ísraelsher segir meirihluta æðstu stjórnenda íranskra öryggissveita hafa verið felldan í aðgerðunum. Þar með hafi burðarásar herstjórnar landsins verið teknar úr umferð á skömmum tíma.
Árásirnar hófust á laugardag og beindust að skotmörkum í Teheran og víðar í Íran.
Æðsti klerkurinn felldur í gær
Eins og greint var í frá í gær var æðsti klerkur Írans, Ayatollah Ali Khamene felldur í aðgerðum Ísraelshers eftir að gerð var loftárás á híbýli hans.
Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um umfang aðgerðanna eða viðbrögð íranskra stjórnvalda.
