Starfshópur um málefni fullorðinna einhverfra skilar tillögum til ráðherra

Starfshópur um málefni fullorðinna einhverfra hefur skilað tillögum til Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hópurinn var skipaður í júlí 2024 og var ætlað að greina umfang og samsetningu fullorðinna einhverfra á Íslandi, kortleggja þá þjónustu sem stendur þeim til boða, greina þörf fyrir aðkomu hins opinbera að þjónustu við hópinn og leggja fram tillögur að aðgerðum til úrbóta. 

Við vinnu sína leitaði hópurinn víða fanga og hélt meðal annars rýnifund með fullorðnum einhverfum í samvinnu við Einhverfusamtökin. Þá fundaði hópurinn með fulltrúum allra háskóla í landinu til að kanna þá þjónustu sem einhverfum fullorðnum stendur til boða hjá þeim, auk þess semkönnun var gerð meðal félagsþjónustu sveitarfélaga landsins á þjónustu við einhverfa. 

Ósýnilegur hópur

Í skýrslunni er bent á að einhverfa sé hluti af margbreytileika mannkyns og hafi fylgt því frá örófi alda. Hún hafi mjög sterkan erfðaþátt og tengist óvenjulegum taugaþroska sem fylgi fólki frá vöggu til grafar. Samkvæmt rannsóknum megi ætla að á Íslandi séu a.m.k. 8.000 fullorðnir einhverfir einstaklingar. Stór hluti þeirra hafi hvorki verið skimaður né fengið greiningu á einhverfu. Því eldri sem einstaklingurinn sé, þeim mun ólíklegra sé að slíkt mat hafi farið fram. Þessi staða leiði af sér víðtækan ósýnileika þar sem skortur á greiningu geti takmarkað aðgengi að viðeigandi úrræðum, stuðningi og réttindum.

Áhrif einhverfu margþætt og einstaklingsbundin

Áhrif einhverfu á daglegt líf einstaklinga eru bæði margþætt og einstaklingsbundin. Í skýrslunni er greint frá því hvernig ýmiss konar hindranir geta skapað umtalsverðar áskoranir fyrir einhverfa.  

Þjónustan ómarkviss og aðeins aðgengileg sumum

Kortlagning starfshópsins sýnir að þjónusta við fullorðna einhverfa er víða í boði en er oft ómarkviss, ósamræmd og aðeins aðgengileg fyrir hluta hópsins. Þjónustu- og fagaðila skorti gjarnan þekkingu á sértækum þörfum fullorðinna einhverfra og aðgengi að þjónustu geti verið flókið, ósveigjanlegt og oft miðað við forsendur annarra hópa. Þá mæti starfsumhverfi og opinber rými oft ekki þörfum fólks með skynrænt næmi eða þörf fyrir fyrirsjáanleika og skipulag.

Starfshópurinn leggur fram tillögur að aðgerðum sem miða að því að draga úr hindrunum sem mæta fullorðnum einhverfum í samfélaginu og bæta aðgengi þeirra að þjónustu, atvinnu og upplýsingum. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila