
Það er leynt og ljóst verið að koma á miðstýrðri stjórn þar sem verið er að reyna stjórna fólki og ná yfirráðum yfir því, lífi þess með það að markmiði að koma á einni heimsstjórn. Þetta er gert með ýmsum aðgerðum eins og sást í Covid aðgerðunum sem viðhafðar voru og beinum aðgerðum gegn landbúnaði, veiðum, menningu, skólakerfi og raun öllu sem snýr að daglegu lífi fólks. Þetta var meðal þess sem fram kom í Menntaspjallinu í dag en gestir Valgerðar Snæland Jónsdóttur í þættinum voru þeir Leifur Árnason flugstjóri og Logi Kjartansson lögfræðingur.
Benti Valgerður á í þættinum að ekki þyrfti að leita út fyrir landsteinanna til þess að sjá hvað verið sé að gera. Hér hafi verið komið í veg fyrir hvalveiðar með markvissum hætti en það er aðeins byrjunin.
Alvarlegt þegar kennarar hlaupi eftir alþjóðastofnunum
Þá benti Valgerður á að hingað sé verið að taka inn sérstaka námsskrá frá WHO sem varðar kynfræðslu í skólum og hefur verið harðlega gagnrýnt. Logi bendir á að það sé alvarlegt mál þegar kennarar séu farnir að hlaupa á eftir því sem alþjóðastofnanir vilja koma að inni í skólunum.
Skólum ber ekki nein skylda að taka við efni frá WHO
Þá segir Logi að menn verði að hafa það í huga að það sé alveg klárt að hvort sem efni komi frá WHO eða öðrum alþjóðastofnunum þá trompi það ekki íslensk lög og kennurunum beri einfaldlega að fara eftir því sem íslensk lög segja.
Kennarar láti ekki blekkjast
Valgerður tekur undir þetta og segir mikilvægt að kennarar átti sig á þessu atriði og láti ekki blekkjast af því sem þessar alþjóðastofnanir ætli sér að koma inn hjá þjóðinni.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun um málið í spilaranum hér að neðan
