Stjórnlagadómstóll Póllands stendur með stjórnarskrá landins

Júlíus Valsson skrifar:

Fréttin sem RÚV þorir ekki að birta

Reglugerðir ESB brjóta gegn stjórnarskrá Póllands.

Stjórnlagadómstóll Póllands hefur komist að þeirri niðurstöðu í júní 2025 að reglugerðir Evrópusambandsins um orku- og loftslagsmál séu ósamrýmanlegar stjórnarskrá landsins og gangi gegn fullveldi þjóðarinnar í ákvörðunartöku um eigin orkustefnu.

Dómstóllinn taldi að stofnanir ESB, þar á meðal dómstóll Evrópusambandsins, hefðu farið út fyrir valdsvið sitt með því að túlka ESB-sáttmálann þannig að það hefði veruleg áhrif á getu Póllands til að velja sína eigin orkugjafa.

Túlkun á lögum ESB

„getur ekki þýtt að Pólland missi stjórn á umfangi framseldra valdsviða og að til séu svið (hér: orkumál) þar sem fullveldi Póllands er ekki varið,“ sagði dómstóllinn í yfirlýsingu þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni.

Saga málsins

Hópur stjórnarandstöðuþingmanna, undir forystu Sebastians Kaleta, þingmanns PiS og fyrrverandi aðstoðardómsmálaráðherra, höfðaði málið. Tillagan vék að samrýmanleika loftslagsreglna ESB við pólsku stjórnarskrána. Þar á meðal er tilskipun 2003/87/EB, dagsett 13. október 2003, sem kveður á um kerfi fyrir viðskipti með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda (EU ETS) innan ESB.

ESB getur ekki gengið gegn stjórnarskrá Póllands í mikilvægum málum

Þingmennirnir héldu því fram að þótt Pólland hefði framselt ákveðnar valdheimildir til Brussel, ætti landið að halda fullveldi sínu að fullu yfir mikilvægum ákvörðunum í orkumálum. Þeir vöruðu einnig við því að ákvarðanatökuferli ESB, sem ekki krefst samhljóða samþykkis í Evrópuráðinu um málefni er varða hlutfall hinna mismunandi orkugjafa (orkublöndu) Póllands, hafi farið gegn valdsviðstakmörkunum ESB og grafið undan forgangi pólsku stjórnarskrárinnar.

Bókun 35

Var einhver að tala um víðtækan og almennan forgang ESB-laga og reglugerða fram yfir íslensku stjórnarskrána?

Eru menn ekki með öllu mjalla á alþingi Íslendinga?

Þurfa þeir e.t.v. spark í rassinn frá pólskum dómara?

ref.

https://trybunal.gov.pl/postepowanie-i-orzeczenia/komunikaty-prasowe/komunikaty-po/art/ksztaltowanie-przez-unie-europejska-i-jej-organy-kompetencji-do-wyboru-przez-panstwo-czlonkowskie-zrodla-energii-i-ogolnej-struktury-zaopatrzenia-rzeczypospolitej-polskiej-w-energie-4

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila