
Það er mjög mikilvægt að stjórnvöld stigi varlega til jarðar þegar kemur að vindmylluvæðingunni hér á landi því náttúran er viðkvæm og hún er það sem dregur ferðamenn hingað til lands. Þetta segir Sævar Skaptason stjórnarformaður Ferðaþjónustu bænda en hann var gestur í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur.
Vindmyllur geta skaðað ferðaþjónustuna
Sævar segir að það sé mikilvægt að ferðaþjónustan sé höfð með í samtalinu sem þarf að fara fram þegar setja á upp vindmyllur því það sé víðáttan og hálendið sem hafi mikið aðdráttarafl á ferðamenn en á sama tíma séu það því miður þeir staðir þar sem hentar að setja niður vindmyllur. Það sé því afskaplega mikilvægt að stjórnvöld stigi mjög varlega til jarðar þegar kemur að þessum málaflokki svo það skaði ekki ferðaþjónustuna.
Orkuöflun má ekki vera á kostnað náttúrunnar
Sævar segist hafa fullan skilning á því að hér þurfi að vera ákveðin þróun þegar kemur að orkuöflun en hún megi aldrei vera á kostnað náttúrunnar því vindmyllur geti tvímælalaust valdið sjónmengun.
Hagsmunaaðilar verða að koma að ákvörðunum um vindmyllur
Því segir Sævar að honum hungist það ekki sérlega vel að hingað komi erlendir aðilar og fái að setja upp vindmyllur upp um allar trissur. Það sé gríðarlega mikivægt að hér hafi stjórnvöld stjórn og taumhald yfir þeim framkvæmdum sem á að fara í því annars geti hlutirnir farið úr böndunum og endað illa. Því sé samtalið við hagsmunaaðila og þjóðina afar brýnt.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
