Stoltenberg: NATO stóð á barmi hruns á minni vakt

Jens Stoltenberg, fyrrverandi framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir í nýrri bók að bandalagið hafi verið í bráðri hættu á leiðtogafundi í Brussel árið 2018. Þar hafi Donald Trump þáverandi forseti Bandaríkjanna, hótað að yfirgefa fundinn og jafnvel að vísa Noregi úr NATO. Bókin, sem ber heitið Á minni vakt, fjallar um ár Stoltenbergs í forystu bandalagsins og gefur innsýn í samskipti hans við Trump.

Hótar að yfirgefa fundinn

Stoltenberg lýsir dramatískum augnablikum á fundinum þegar Trump krafðist þess að önnur aðildarríki hækkuðu varnarmálaútgjöld sín og hótaði að ganga út ef hann fengi ekki skuldbindandi loforð. „Ég horfði yfir salinn. Allir sátu í mikilli einbeitingu, sumir þrýstu heyrnartólinu fastar að eyrað til að heyra betur. Aðrir, sem sátu nær Trump, tóku það af til að heyra hann beint. Allir skildu að þetta var við það að hrynja – allur fundurinn, allar yfirlýsingar um einingu og með því var NATO í bráðri hættu,“ skrifar hann. Stoltenberg viðurkennir að hafa óttast að þetta yrði fundurinn þar sem bandalagið myndi hrynja eftir 70 ára starfsemi. Að lokum tókst þó að ná samkomulagi þar sem Evrópuríkin hétu því að hraða auknum útgjöldum til varnarmála og tókst þannig að forða kreppu.

Trump spurði hvort hægt væri að vísa Noregi úr NATO og dró í efa mikilvægi Íslands í NATO

Í bókinni segir Stoltenberg að Trump hafi í samtali í Hvíta húsinu, áður en fundurinn í Brussel hófst, velt því fyrir sér hvort hægt væri að „sparka Noregi út úr NATO“ vegna þess að landið stæði sig ekki nægilega vel í fjárframlögum til bandalagsins. „Ef Noregur er ekki tilbúið að greiða fyrir ‘fulla aðild að NATO’ ætti það kannski frekar að velja ‘hálfa aðild að NATO’, lausara fyrirkomulag eins og Svíþjóð hafði. Viljirðu 100 % tryggingu verðurðu að greiða alla iðgjaldaprémíuna. Svona var röksemdafærsla hans,“ skrifar Stoltenberg. Trump á einnig að hafa spurt: „Hvað eigum við eiginlega sameiginlegt með Íslandi?“ og dregið í efa mikilvægi Íslands innan bandalagsins.

Trump kemur til dyranna eins og hann er klæddur

Bókin lýsir einnig öðrum atvikum þar sem samstarfsmenn Trump voru gagnrýnir á forsetann. Stoltenberg segir að ekki sé mikill munur á framkomu Trumps í einkasamtölum og þeirri sem hann sýni opinberlega. Hann lýsir Trump sem orkumiklum og óstöðvandi og bætir við að forsetinn drekki mikið af Diet Coke.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila