
Magnús Magnússon ræddi við Ólaf Helga Helgason, hljóðfæraleikara og þáttastjórnanda, í þættinum Gömlu góðu lögin um afmælis- útgáfu- og ferilstónleika Rúnars Þórissonar sem fram fara 10. janúar kl. 20.00 í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Tónlistarveisla með samstarfsfólki síðustu fjögurra áratuga
Rúnar Þórisson heldur stórtónleika í Bæjarbíói 10. janúar 2026 þar sem hann fagnar tímamótum á ferli sínum, útgáfu nýrrar plötu og afmælisdegi. Á sviðinu verða fjölmargir samstarfsmenn hans í gegnum árin, þar á meðal Andrea Gylfadóttir, Helgi Björnsson, Lára Rúnarsdóttir og Margrét Rúnarsdóttir. Þá koma fram hljómsveitirnar Dögg og Ýr ásamt meðlimum Grafík, sem mótuðu tónlistarsenu 9. og 10. áratugarins. Flutt verða þekkt lög þessara sveita ásamt lögum af nýjustu plötu Rúnars, „Svo fer“, og eldri plötum hans. Hljómsveit kvöldsins er skipuð einvalaliði sem hefur starfað með Rúnari um árabil þar á meðal Arnar Þór Gíslason trommuleikari og Birkir Rafn Gíslason gítarleikari sem báðir hafa verið lykilmenn í verkefnum hans síðustu tvo áratugi.
Ólafur Helgi í nýju hlutverki á tónleikunum
Í þættinum kom fram að Ólafur Helgi Helgason verður einnig hluti af tónleikunum en tekur nú að sér nýtt hlutverk. Hann hefur um árabil verið hluti af síðustu lögum tónleikahluta Dögg en fyrir tónleikana 10. janúar færist hann yfir á percussion-hljóðfæri, þar á meðal kúabjöllu og tambúrínu. Nýr trommari tekur við aðaltrommusettinu en hann hefur meðal annars starfað með Mugison og unnið náið með Rúnari.
Ný plata markar þáttaskil og endurspeglar 60 ára tónlistarvegferð
Rúnar fagnar jafnframt útgáfu plötunnar „Svo fer“. Platan dregur upp ferðalag minninga sem spanna sex áratugi og endurspeglar ólík skeið í lífi hans og á ferli. Þar má finna áhrif frá klassík, poppi, ballöðum og framsækinni tónlist sem hefur einkennt verk hans í gegnum tíðina. Tímamótin eru fjölþætt: 20 ár eru liðin frá sólóplötunni „Ósögð orð og ekkert meir“ 40 ár frá því Grafík sló í gegn með lögum á borð við „Þúsund sinnum segðu já“ og „Húsið og ég“. Þá eru 60 ár frá því Rúnar fékk sinn fyrsta gítar og hóf feril sem síðar leiddi hann inn í hljómsveitina Dögg og um það bil 50 ár frá því hann og Rabbi trommari stofnuðu tónlistarlegt fóstbræðralag sem varð grunnurinn að Grafík. Einnig eru um 30 ár liðin frá því Rúnar sneri heim að loknu tónlistarnámi erlendis og um 10 ár frá því hann setti sér þá áskorun að gefa út eitt frumsamið lag á mánuði í nær heilt ár. Að auki eru liðin rúm fimm ár frá endurnýjun lífdaga hans eftir ofkólnun í sjósundi, sem hann hefur sjálfur nefnt einn af lykilviðburðum lífs síns. Með tónleikunum er því haldið upp á bæði persónuleg og tónlistarleg tímamót sem mörkuðu leiðina að nýjustu verkum hans.
Meðal stærstu tónlistarviðburða ársins í Bæjarbíói
Tónleikarnir eru taldir verða meðal stærstu tónlistarviðburða ársins í Bæjarbíói og aðsókn hefur jafnan verið mikil þegar Rúnar stígur á svið. Viðburðurinn höfðar til breiðs hóps tónlistarunnenda og verður sannkallað hátíðarkvöld fyrir alla sem vilja hefja nýtt ár með því að hlýða á góða tónlist í lifandi flutningi.
Kaupa má miða á tónleikana með því að smella hér.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
