Stýrihópur vinnur að mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks

Stýrihópurinn er skipaður tólf einstaklingum.

Stýrihópur um mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks hefur hafið störf. Áshildur Linnet, sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, er formaður hópsins og hittist hann í ráðuneytinu í gærmorgun.  

Í tilkynningu segir að Stýrihópurinn sé skipaður á grundvelli stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en þar er kveðið á um að mótuð verði skýr og heildstæð stefna í málefnum útlendinga á Íslandi. Skipunin byggir einnig á þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022-2025. Stefnunni sem hópurinn mótar er ætlað að tryggja að fólk sem sest hér að hafi tækifæri til að aðlagast og taka virkan þátt í samfélaginu, þar með talið á vinnumarkaði. 

Þá segir í tilkynningunni að við mótun stefnunnar verður meðal annars farið í saumana á því með hvaða hætti stuðla megi að inngildingu fólks í samfélagið, hvort sem um er að ræða innflytjendur eða flóttafólk hér á landi. Einnig er gert ráð fyrir að í stefnunni komi fram hvernig styðja megi við atvinnuþátttöku fólks.  

Sérstök áhersla verður lögð á að skoða möguleika fólks til virkrar þátttöku í samfélaginu og fjalla um félagsleg réttindi, menntun og atvinnuþátttöku með það að markmiði að á Íslandi verði fjölmenningarsamfélag þar sem grundvallarstefin eru jafnrétti, réttlæti og virðing.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila