Styrkja þarf íþróttafélög og bæta skipulag frístundastarfs barna

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Bjarna Guðjónsson sem skipar 2. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í síðdegisútvarpinu um skóla- og frístundamál, í Reykjavík. Þar kom fram að hann telur að styrkja þurfi íþróttafélög og bæta skipulag milli skóla og frístunda, til að mæta þörfum barna og fjölskyldna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Íþróttafélög glíma við rekstrarvanda

Bjarni sagði að íþróttafélög í Reykjavík, standi frammi fyrir verulegum rekstraráskorunum. Hann sagði að félögin gegni mikilvægu hlutverki í uppeldi barna og ungmenna en að þau búi við þröngan fjárhag og skorti stuðning frá borginni. Bjarni benti á að félögin hafi ítrekað leitað eftir aðstoð en fengið tökmörkuð viðbrögð. Hann taldi að þar væru vannýtt tækifæri til að styrkja starf sem hefði bæði félagslegt gildi og forvarnaráhrif.

Skipulag milli skóla og frístunda ekki í lagi

Fram kom að skortur sé á samræmingu milli skóladags og frístundastarfs. Börn ljúki skóladegi snemma en þurfi síðar að komast á æfingar án þess að kerfi sé til staðar sem tryggi samfellda þjónustu. Bjarni taldi að þetta leggi aukið álag á foreldra sem þurfi að sinna akstri milli staða á sama tíma og íþróttafélög reyni að brúa bilið með eigin úrræðum.

Vill bæta aðgengi barna að íþróttum

Þá sagði Bjarni að tryggja þurfi að öll börn hafi raunverulegan aðgang að íþróttum og félagsstarfi óháð aðstæðum. Hann sagði að íþróttir gegni mikilvægu hlutverki í forvörnum og félagslegri þátttöku og að það þurfi að styðja betur við það starf. Hann taldi að með bættri samvinnu skóla, borgar og íþróttafélaga væri hægt að skapa samfellda þjónustu sem auðveldi börnum að taka þátt.

Tækifæri til að þróa aðstöðu og starfsemi

Í máli Bjarna kom fram að horfa þurfi til framtíðar í uppbyggingu íþróttaaðstöðu, meðal annars með því að nýta mannvirki betur og skoða samnýtingu með öðrum rekstri. Hann taldi að þannig mætti hámarka nýtingu fjár og bæta aðstöðu fyrir bæði börn og afreksíþróttafólk. Hann sagði að Reykjavík ætti að setja sér skýra stefnu um hvernig styrkja megi íþróttastarf til lengri tíma.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila