Svandís brotleg

Umboðsmaður Alþingis hefur gefið frá sér álit þar sem fram kemur að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hafi brotið lög, meðal annars með útgáfu reglugerðar án lagastoðar. Svandís braut lögmætisreglu og vanvirti meðalhófsreglu stjórnsýslulaga að mati umboðsmanns, þá er hún bannaði hvalveiðar með dags fyrirvara í sumar.

Svandís telur að lögin séu úrelt og úr sér gengin og því hafi hún ekki þurft að virða þau en segist samt taka niðurstöðinni alvarlega. Svandís telur að álitið og lögbrotið hafi engin áhrif á stöðu hennar sem ráðherra og telur sig ekki þurfa að segja af sér ráðherraembætti vegna málsins. Búast má við að íslenska ríkið verið lögsótt vegna lögbrota ráðherrans sem mun hafa í för með sér gífurlegan kostnað fyrir skattgreiðendur. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila