
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra er í algerlega vonlausri stöðu vegna hins umdeilda hvalveiðibanns og samstarfsflokkarnir eru í klemmu því nú nálgast sá dagur að bannið falli úr gildi eða í lok ágúst n.k. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins í viðtali við Pétur Gunnlaugsson í dag.
Vilhjálmur bendir á að að bæði þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins sem hafi mætt á opinn fund á Akranesi fyrir skömmu vegna bannsins hafi talað alveg skýrt á fundinum og látið þau orð falla að það yrði að vinda ofan af hvalveiðibanninu og að flest benti til þess að ráðherra hafi gerst brotlegur við lög.
“Ef Svandís tekur ákvörðun um að halda banninu áfram hvað ætla þessir þingmenn að segja þá?” spyr Vilhjálmur.
Hann segir að ef ráðherra tekur þá ákvörðun að halda banninu áfram muni það einungis hækka þá skaðabótakröfu sem Hvalur hf mun án efa krefjast fyrir dómi vegna ákvörðunarinnar sem auðvitað lendi svo á skattgreiðendum að borga
“verði ákvörðun ráðherra dæmd ólögmæt fyrir dómi eða að álit umboðsmanns Alþingis verður á þann veg að hann telji ákvörðunina vera ólöglega þá hlýtur matvælaráðherra að taka pokann sinn og hætta í embætti” segir Vilhjálmur.
Hann ítrekar að það yrði ekki í fyrsta sinn sem Svandís væri dæmd fyrir að hafa tekið ólögmætar ákvarðanir í starfi ráðherra til þess eins að koma sinni pólitík að.
“ef starfsmaður fyrirtækis myndi valda fyrirtækinu sem hann starfaði hjá vísvitandi skaða yrði hann rekinn með skít og skömm og jafnvel krafinn bóta en þarna er ráðherra sem telur það bara í góðu lagi að haga sér svona og almenningur er látinn borga brúsann” segir Vilhjálmur.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan
