
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Símon Þorkel Símonarson Olsen íbúa í Gufunes hverfi í síðdegisútvarpinu í dag um samgöngur í Gufunesi og hvernig upphafleg loforð borgaryfirvalda um bílausan lífsstíl hafi gjörsamlega brugðist. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Loforð sem stóðust ekki þegar íbúar fluttu inn
Í viðtalinu lýsti Símon því að þegar fyrstu íbúarnir fluttu í Gufunes hafi þeim verið kynnt framtíðarsýn um umhverfisvænan og bílausan lífsstíl. Þar hafi verið gert ráð fyrir að íbúar gætu treyst á strætó, göngu- og hjólaleiðir og skilvirka þjónustu innan hverfisins. Hann sagði að þessi grundvallarforsenda hafi ekki ræst og að íbúar hafi neyðst til að kaupa bíla vegna skorts á raunhæfum ferðamátum. Símon tók fram að íbúar hefðu talið sig ganga inn í hverfi þar sem almenningssamgöngur væru til staðar en engin hefðbundin strætóleið hafi nokkurn tíma verið innleidd í hverfið frá því að það reis.
Pöntunarþjónusta sem nær ekki að sinna þörfinni
Símon sagði að þjónustan sem borgin boði í stað strætó byggi á leigubílum sem séu pantaðir fyrirfram og taki aðeins sex farþega í einu. Hann lýsti því hvernig íbúar sitji eftir á biðsvæðum þegar bíllinn fyllist og að margir komist ekki með í næstu ferð. Að hans mati hafi þessi lausn aldrei verið fær til að þjóna hverfi þar sem hundruð íbúa eru háðir almenningssamgöngum.
Ferðatími lengist og sjálfstæði íbúa skerðist
Símon lýsti því að samgöngur inn og út úr Gufunesi geti tekið allt að fjörutíu mínútur í hvora átt, jafnvel á stuttum leiðum sem annars tækju fáeinar mínútur með beinni strætóleið. Hann sagði að íbúar væru fastir í ástandi þar sem þeir eyddu óhóflegum tíma í að komast til vinnu, skóla eða verslana og að lífsgæði skerðist verulega þegar ferðavenjur byggi á svo ótraustu kerfi. Að hans mati sé niðurstaðan sú að bílaus lífsstíll sé einfaldlega ómögulegur við núverandi aðstæður og að margir hafi neyðst til að kaupa bifreið þvert á markmið borgarinnar.
Íbúar í Gufunesi fastir í samgöngumartröð
Símon sagði að íbúar vildu ekki sérmeðferð eða flóknar lausnir, heldur einfaldlega reglulegar og áreiðanlegar almenningssamgöngur eins og aðrir íbúar borgarinnar. Hann benti á að ein strætóleið sem gengi inn í hverfið gæti leyst stóran hluta vandans og gert íbúum kleift að treysta á ferðamáta sem börn, aldraðir og bíllaus heimili ráða við. Í viðtalinu kom fram að íbúar telja borgaryfirvöld vísvitandi hafa látið samgöngur bíða vegna fyrirhugaðrar borgarlínu, sem ekki er ljóst hvort né hvenær verður að veruleika. Að mati Símonar hafi þessi ákvörðun valdið því að íbúar svæðisins séu í raun fastir í samgöngumartröð sen ekki sjái fyrir endan á.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
