Tæknin notuð í pólitískum tilgangi til að framkalla ofsaveður og loftslagsbreytingar

Tæknin er notuð í pólitískum tilgangi til þess að framkalla ofsaveður og loftslagsbreytingar. Er þetta gert til þess að skapa krísuástand svo stjórnvöld geti sett almenningi hömlur. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Menntaspjallinu en þar var Leifur Árnason flugstjóri gestur Valgerðar Jónsdóttur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Leifur lýsti áhyggjum sínum af því hvernig þessar tækniaðferðir séu nýttar til að framkalla fellibylji, storma og náttúruhamfarir sem geti réttlætt aukin inngrip stjórnvalda og valdaaukningu þeirrra. Leifur vísaði sérstaklega til skýsaukningar, aðferðar þar sem efnum er úðað í ský til að auka úrkomu. Hann nefndi að þetta sé þegar stundað í löndum eins og Sameinuðu arabísku furstadæmunum þar sem saltefni er úðað í skýin með flugvélum til að framkalla regn. Hann lýsti því hvernig þessi tækni væri orðin vel þekkt og víða notuð, þar á meðal með því að breyta skýjum með mismunandi efnum til að hafa áhrif á veðurskilyrði og úrkomu.

Hægt að beita rafsegulbylgjum og hljóðbylgjum til að framkalla ofsaveður

Leifur benti einnig á að veðurstýring sé mögulega stunduð með því að beita rafsegulbylgjum og hljóðbylgjum til að breyta veðurmynstrum og framkalla ofsaveður. Hann útskýrði að tækni til að stjórna veðri hafi verið þróuð í mörg ár og að hún sé nú notuð til að búa til regn, hvirfilbylji og aðrar náttúruhamfarir sem hafi alvarleg áhrif á samfélög. Að hans mati er ekki útilokað að þessi tækni sé notuð í pólitískum tilgangi, þar sem hún skapar ástæður fyrir stjórnvöld til að grípa til neyðarástands og takmarka frelsi almennings með auknu eftirliti á ákveðnum svæðum.

Hundruð einkaleyfa sem lýsa tæknilausnum til veðurstýringar og loftlagsbreytinga

Leifur nefndi að til séu hundruð einkaleyfa sem lýsa tæknilausnum til veðurstýringar og loftslagsbreytinga. Hann sagði að einkaleyfi frá því snemma á 19. öld hafi nú þróast í flóknari og skilvirkari tæknilausnir sem eru mögulega notaðar í dag. Hann hvatti hlustendur til að vera vakandi fyrir þessari þróun og kynna sér þessar upplýsingar betur, til að átta sig á þeim möguleikum og afleiðingum sem slík tækni gæti haft í för með sér.

Hlusta má á ítarlegri umræður í spilaranum hér að neðan

Aðrir hlekkir sem tengjast umfjöllunarefni þáttarins:

https://island.is/samradsgatt

https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/lagafrumvorp

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila