Telur næsta gos á Reykjanesi verða svipuð og hin fyrri

Nú þegar styttist í næsta gos á Reykjanesi velta margir því fyrir sér við hverju megi búast. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands segir að búast megi við að það verði svipað og fyrri gos, öflugt í byrjun en standi stutt yfir. Þetta kom fram í viðtali Arnþrúðar Karlsdóttur við Þorvald í síðdegisútvarpinu.

Gos líklegast á milli Helgafells og Stóra Skógfells

Þorvaldur segir að líklegast sé að næsta gos komi upp á milli Hagafells og Stóra Skógfells en þó verði að gera ráð fyrir að það kunni að koma upp annars staðar. Hann segir líklegt að gosið muni byrja með krafti og miklu hraunflæði í byrjun og svo draga fljótt úr því en hversu fljótt dragi úr gosinu ráðist einfaldega af því hversu mikil kvika komi upp í byrjun gossins. Komi mikil kvika upp í byrjun eins og Þorvaldur telur að muni gerast þá muni gosinu ljúka fljótt.

Staðsetning á gosi skiptir miklu máli

Þá skiptir staðsetning gossins miklu máli þegar kemur að því að spá fyrir um hvert kvikan muni renna. Ef tekið er mið af fyrri gosum og gosið kæmi upp á milli Hagafells og Stóra Skógfells sé líklegt að einhver kvika kunni að renna í átt að Svartsengi. Þar séu komnir upp öflugir varnargarðar svo ólíklegt er að hún valdi tjóni þar sem magn kviku er ekki nægilega mikið til að flæða yfir garðana en færi mögulega yfir hluta Grindavíkurvegar.

Hraunrennsli gæti runnið fimm kílómetra á skömmum tíma

Komi gosið hins vegar upp sunnan Hagafells sé komin upp önnur sviðsmynd því þá sé Grindavík í skotlínunni en þar séu einnig varnargarðar sem ættu að halda og svo lengi sem sprungan sé ekki innan varnargarðanna ætti Grindavík að vera óhult. Svo er það þriðji möguelikinn sem sé ef gosið komi upp norðan við Stóra Skógfell og þá sé möguleiki á því að hraun renni í norður. Þá sé spurningin um hvernig rennslið muni haga sér því ef það fari strax í ákveðna rás geti það runnið töluverða vegalengd á skömmum tíma eða allt að fimm kílómetra. Það muni þó ekki ná alveg Reykjanesbraut einfaldlega vegna þess að gosin sem hafa orðið eru ekki nægilega stór til þess að ná svo langt.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila