Velferðarmál og málefni lífeyrisþega áfram í forgangi hjá Flokki fólksins

Inga Sæland formaður Flokks fólksins

Velferðarmál og málefni lífeyrisþega verða áfram forgangsmál hjá Flokki fólksins þennan þingveturinn en í dag verður mælt fyrir tveimur af þeim fimm málum sem eru í forgangi hjá flokknum en hvorugt þessara mála hafa verið á dagskrá þingsins áður. 


Inga Sæland mælir fyrir þingsályktunartillögu þar sem félags- og barnamálaráðherra er falið að undirbúa og leggja fram frumvarp um að endurhæfingarlífeyrir og ellilífeyrir tryggi 300 þús. kr. lágmarksframfærslu á mánuði, skatta- og skerðingarlaust. Þetta verði gert fyrir lok nýhafins löggjafarþings.


Í greinargerð með þingsályktunartillögunni segir m. a.: „Lægstu mánaðarlegar greiðslur til lífeyrisþega, sem engar aðrar tekjur hafa, eru aðeins 212.000 kr. eftir skatt og 252.000 kr. ef viðkomandi hefur heimilisuppbót. Þeir sem búa við svo kröpp kjör eru fastir í fátæktargildru.
Á undanförnum árum hefur framfærslukostnaður stóraukist, ekki síst húsnæðiskostnaður, en á sama tíma hafa greiðslur almannatryggingakerfisins ekki fylgt almennri launaþróun í landinu … Almannatryggingakerfið á að tryggja þeim sem á þurfa að halda grundvallarmannréttindi, þ.e. fæði, klæði og húsnæði. Ríkisvaldið eigi ekki að dæma einstakling í ævilanga fátækt ef viðkomandi er svo ólánsamur að verða öryrki. 


Flokkurinn segir það nauðsynlegt að hækka lágmarksframfærsluviðmið almannatrygginga svo að það taki utan um og verndi með viðhlítandi hætti þá sem verst standa og mest þurfa á hjálpinni að halda. Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar ber löggjafanum skylda til að tryggja öllum þeim sem á þurfa að halda aðstoð vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra aðstæðna. 


Þessi vernd sem stjórnarskráin veitir okkar minnstu bræðrum og systrum er ekki virt. Það er löngu orðið tímabært að fjármunum verði forgangsraðað í þágu þeirra sem mest þurfa á að halda. Því er lagt til að löggjafinn tryggi að lífeyrisþegar almannatrygginga hafi ráðstöfunartekjur sem nemi a.m.k. 300.000 kr. á mánuði, skatta- og skerðingarlaust.

Þá mælir Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður flokksins fyrir frumvarpi þar sem gert er ráð fyrir að þeir sem séu á örorku verði heimilt að afla sér tekna án þess að þær skerði örorkulífeyri, aldurstengda örorkuuppbót, tekjutryggingu og sérstaka uppbót á lífeyri.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila