Þjálfun úkraínskra hermanna í sprengjuleit og sprengjueyðingu hafin

Þjálfun úkraínskra hermanna til sprengjuleitar og sprengjueyðingar hófst í Litáen í vikunni. Um er að ræða samstarfsverkefni Norðurlandanna og Litáen og annast litáískir, norskir, sænskir og íslenskir sprengjusérfræðingar framkvæmdina.

Markmið verkefnisins er að gera úkraínska hernum betur kleift að finna og eyða ósprungnum sprengjum í Úkraínu í kjölfar innrásar Rússlands en talið er að ósprungnar sprengjur af ýmsu tagi fyrirfinnist á allt að fimmtungi úkraínsks landssvæðis Þjálfunin eru liður í því að styrkja varnarsveitir Úkraínu og draga úr hættu á því að íbúar landisins verði fyrir skaða.

„Eftir að hafa séð með eigin augum eyðilegginguna og hörmungarnar sem sprengjuárásir Rússa hafa valdið almenningi í Úkraínu er ég stolt að því að við getum lagt okkar af mörkum á sviði sem Ísland hefur sérþekkingu á í samstarfi við okkar nánustu samstarfsríki,“ segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Utanríkisráðuneytið í samstarfi við sérfræðinga séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar hafa annast undirbúning og framkvæmd verkefnisins en þeir hafa á undanförnum árum sinnt verkefnum á vegum Atlantshafsbandalagsins á sviði þjálfunar sprengjusérfræðinga, meðal annars í Írak og Jórdaníu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila