Þjóðhagsráð ræddi stöðu efnahagsmála

Þjóðhagsráð hélt í gær sinn fyrsta fund á árinu. Á fundinum voru til umræðu staða efnahagsmála, staða aðgerða stjórnvalda til að greiða fyrir langtímakjarasamningum í mars 2024 og þróun launa á undanförnum misserum. 

Þjóðhagsráð kemur saman minnst fjórum sinnum á ári og fjallar um stöðu í efnahags- og félagsmálum og ræðir samhengi opinberra fjármála, peningastefnu og kjaramála í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni. 

Fram kemur í tilkynningu að kynningar og minnisblöð sem kynnt voru á fundinum á mánudag séu nú aðgengileg en ef smellt er á bláu hluta textans má lesa skjölin. Á fundinum kynntu fulltrúar Seðlabanka Íslands annars vegar stöðu og horfur í efnahagsmálum og hins vegar umfjöllun um þróun launa á undanförnum misserum. Þá kynnti fjármála- og efnahagsráðherra minnisblað um stöðu efnahagsmála

Jafnframt kynnti forsætisráðherra minnisblað um stöðu aðgerða til að greiða fyrir langtímakjarasamningum í mars 2024 sem ríkisstjórn og Samband íslenskra sveitarfélaga stóð sameiginlega að. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila